Arðsemisaukning í íslensku sandhverfueldi
Meginmarkmið verkefnisins er að þróa aðferðir til þess að lækka framleiðslukostnað við eldi á sandhverfu (Scophthalmus maximus).
Eldi á sandhverfu fer vaxandi á Íslandi og mikilvægt að þróa aðferðir til þess að lágmarka kostnað við framleiðslu. Sandhverfa er mjög álitleg eldistegund fyrir íslensk strandeldisfyrirtæki. Tegundin hefur ótvíræða eldiskosti auk þess sem markaðsverð er hátt, 650-1300 kr/kg, og stöðugt. Eldi í strandeldisstöðvum er hins vegar kostnaðarsamt og mikilvægt að leita allra leiða til þess að lágmarka framleiðslukostnað.
Markmiðum þessa verkefnis verður náð með þremur megin tæknilegum úrlausnarefnum.
Í fyrsta lagi verða þróaðar aðferðir þar sem ljósastýring er notuð á markvissan hátt til þess að auka vöxt í áframeldi um allt að 25% í samanburði við hefðbundnar aðferðir.
Í öðru lagi að auka vöxt, bæta fóðurnýtingu og draga úr fóðurkostnaði með því að þróa og skilgreina nýjar fóðurgerðir fyrir sandhverfu (> 500g).
Þriðja tæknilega markmiðið er að þróa tæki sem gerir ætternisgreiningar aðgengilegar og því hægt að fyrirbyggja skyldleikaræktun og tryggja þannig erfðabreytileika sem tryggir bestan vöxt. Áætlað er að þegar þessi úrlausnarefni fari saman megi lækka framleiðslukostnað um allt að 45%.
Framtíðarsýn er að nýta hentugar aðstæður í strandeldisstöðvum til þess að ala sandhverfu í miklu mæli með sem minnstum tilkostnaði.
Heiti verkefnis: Arðsemisaukning í íslensku sandhverfueldi
Verkefnisstóri: Albert K. Imsland, Albert.Imsland()akvaplan.niva.no
Þátttakendur: Akvaplan.niva á Íslandi, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum, Matís ohf., Silfurstjarnan hf., Fóðurverksmiðjan Laxá hf. og University of Portsmouth
Verktími: 3 ár
Styrkur: 7 m.kr. 1. árið
Umsjónarmaður Rannís: Sigurður Björnsson, sigurdur@rannis.is
Tilvísunarnúmer Tækniþróunarsjóðs:081233