Athugið: Nýjar fréttir og viðburðir birtast nú eingöngu á island.is/s/rannis

Upplýsingadagar Rannís fyrir Horizon Europe 9.1.2023 13:00 - 14:30 Upplýsingadagur: Félags-/hugvísindi og heilbrigðismál

Rannís stendur fyrir opnum kynningarfundum á netinu um Horizon Europe í desember 2022 og janúar 2023!

Lesa meira
 

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Horizon Europe: Félags- og hugvísindi (Culture, Creativity and Inclusive Society) 17.1.2023 Upplýsingadagar Horizon Europe

Upplýsingadagur og tengslráðstefna Framkvæmdastjórnar ESB verða haldnir 17. janúar og 18. og 19. janúar 2023 í tengslum við vinnuáætlun klasa 2. Um er að ræða viðburð á netinu.

Lesa meira
 

Upplýsingadagar Leiðangra (Missions) í Horizon Europe 17.1.2023 - 18.1.2023 Upplýsingadagar Horizon Europe

Upplýsingadagar Framkvæmdastjórnar ESB verða haldnir 17. janúar og 18. janúar 2023 í tengslum við vinnuáætlun Leiðangra. Um er að ræða viðburð á netinu.

Lesa meira
 

Erasmus+ og ESC kynningarfundir, vefstofur og hugmyndasmiðjur fyrir umsækjendur 17.1.2023 12:00 - 13:00 Kynningarfundur

Framkvæmdastjórn ESB hefur auglýst eftir umsóknum um styrki í Erasmus+ og European Solidarity Corps fyrir árið 2023. Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi mun á næstunni bjóða ólíkum markhópum til kynningarfunda, vefstofa og hugmyndasmiðja til að kynna þau fjölbreyttu tækifæri sem felast í evrópsku samstarfi í mennta- og æskulýðsstarfi. 

Lesa meira
 

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Horizon Europe: Heilbrigðismál (Health) 19.1.2023 - 20.1.2023 Upplýsingadagar Horizon Europe

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Framkvæmdastjórnar ESB verður haldin 19. janúar og 20. janúar 2023 í tengslum við vinnuáætlun klasa 1 um heilbrigðismál. Um er að ræða viðburð á netinu.

Lesa meira
 

Creative Europe vefstofa 23.1.2023 14:00 Vefstofa

Mánudaginn 23. janúar nk. klukkan 14:00 stendur Rannís fyrir vefstofu um samstarfsverkefni í Creative Europe.

Lesa meira
 

Digital Europe auglýsir opið kall til styrktar þróunar á stafrænni hæfni á háskólastigi 24.1.2023 Umsóknarfrestur

Verkefnið skal vera þróað innan evrópsks háskólanets í samstarfi við að minnsta kosti tvö fyrirtæki (SMEs) og rannsóknasetur. Hvert verkefni verður styrkt um 10 miljónir evra til allt að fjögra ára. Umsóknarfrestur er 24. janúar 2023.

Lesa meira
 

Úthlutunarfundur Rannsóknasjóðs 2023 27.1.2023 14:00 - 15:30 Hotel Reykjavik Natura

Rannsóknasjóður boðar til fundar, í tilefni úthlutunar Rannsóknasjóðs, föstudaginn 27. janúar, kl. 14:00 til 15:30 á Hótel Reykjavík Natura.

Lesa meira
 

Sex verkefni tilnefnd til Nýsköpunar­verðlauna forseta Íslands 30.1.2023 Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, 30. janúar nk. Verðlaunin eru veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt voru af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2022. 

Lesa meira
 

Fræðslulíkön fyrir sjálfbæran lífsstíl - Vefnámskeið 30.1.2023 11:00 - 13:00 Vefnámskeið

Á vefnámskeiðinu sem er haldið 30. janúar kl. 11-13 að íslenskum tíma verða kynntar bráðabirgðaniðurstöður tilraunaverkefnis um fræðslulíkön fyrir sjálfbæran lífsstíl. Námskeiðið fer fram á ensku

Lesa meira
 

Upplýsingadagur Evrópska nýsköpunarráðsins (EIC) og Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) 31.1.2023 8:00 - 11:30 Upplýsingadagur

Um er að ræða viðburð á netinu þann 31. janúar nk. frá 8:00 - 11:30 að íslenskum tíma. 

Lesa meira
 

Opið er fyrir umsóknir í Nordplus 2023 1.2.2023 Umsóknarfrestur

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2023-2027. Áhersluatriði áætlunarinnar fyrir 2023 og 2024 er að efla menntasamstarf til að stuðla að samfélagslega sjálfbærri framtíð. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2023. 

Lesa meira
 

Vefstofa og á stað: Stjórnun styrkja innan Horizon Europe 2.2.2023 8:30 - 15:30 Hybrid fundur

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stendur fyrir fundi á netinu og á staðnum (Brussel) þann 2. febrúar nk. frá 8:30-15:30 að íslenskum tíma.

Lesa meira
 

European Digital Innovation Hub Iceland (EDIH-IS) hefur starfsemi 2.2.2023 8:30 Opnun

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla, vísinda, iðnaðar og nýsköpunar opnar formlega Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) þann 2. febrúar næstkomandi kl 9:00 í Grósku Hugmyndahúsi.

Lesa meira
 

Kynntu þér stafræn tækifæri hjá Rannís á UTmessu 2023 í Hörpu 3.2.2023 - 4.2.2023 UTmesan

UTmessan fer fram í Hörpu dagana 3. og 4. febrúar. Á föstudeginum er ráðstefna fyrir fagfólk í tæknigeiranum en á laugardeginum verður tæknidagur opinn almenningi frá kl. 10:00-17:00.

Lesa meira
 

Vefstofa: "Lump sum" fjármögnun í Horizon Europe 9.2.2023 9:00 - 11:00 Vefstofa

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stendur fyrir fjármálanámskeiði á netinu 9. febrúar nk.

Lesa meira
 

Nýsköpunarsjóður námsmanna 13.2.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Háskólanema í grunn- og meistaranámi. Umsjónarmenn innan háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja geta sótt í sjóðinn án þess að hafa fundið nema.

Til hvers?

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er einu sinni á ári og er 6. febrúar 2026.

EN

Lesa meira
 

Kynningarfundur um styrki Tækniþróunarsjóðs með áherslu á Hagnýt rannsóknarverkefni 15.2.2023 12:00 - 13:30 Hybrid fundur

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 15. febrúar nk. kl. 12:00 til 13:30 í húsnæði Rannís, Borgartúni 30 í Hvammi á 3ju hæð, og á Teams.

Lesa meira
 

Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Leikskólastjóra, skólastjóra eða skólameistara fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.

Til hvers?

Styrkja verkefni sem stuðla að þróun og nýjungum í skólastarfi  í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026 klukkan 15:00.

Auglýst var eftir umsóknum á vef Rannís 26. nóvember 2025
Sjá upplýsingar um hvernig einstaklingar geta skráð sig innn á fyrir hönd opinberra aðila í gegnum umboðskerfi innskráningarþjónustu Ísland.is. Ef spurningar vakna tengt veitingu umboðs þarf að hafa samband við island.is. En notandi sem gerir umsókn fyrir skóla má vera einstaklingur og það er algengast.

EN

Lesa meira
 

Kynningarfundur um styrki Tækniþróunarsjóðs - fyrirtækjastyrkir og skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna 16.2.2023 12:00 Veffundur

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 16. febrúar nk. kl. 12:00-13:30 í streymi (Teams).

Lesa meira
 

Kynningarfundur um Eurostars-3 17.2.2023 9:00 - 10:00 Kynningarfundur

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 17. febrúar nk. kl. 9:00-10:00 í húsnæði Rannís, Borgartúni 30 í Hvammi á 3ju hæð.

Lesa meira
 

Æskulýðssjóður 16.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Börn og ungmenni,  á aldrinum 6-25 ára.

Til hvers?

Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína. 

Umsóknarfrestur: 

Næsti umsóknarfrestur verður 16. febrúar 2026 klukkan klukkan 15:00.

Senda fyrirspurn

 EN

Lesa meira
 

Orkuskiptin í brennidepli - opið kall CETP 2.3.2023 Umsóknarfrestur

Um er að ræða samfjármögnunarverkefnið CETP (Clean Energy Transition Partnership) og um fyrsta kall að ræða. 

Lesa meira
 

Þróunarsjóður námsgagna 16.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Kennara, höfunda námsefnis og útgáfufyrirtæki.

Til hvers?

Gerð námsefnis fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er, verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á.

Styrkumsóknum er skipt í tvennt og er hægt að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 3 milljónum króna, en einnig er hægt að sækja um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 6 milljónum króna. 

Næsti umsóknarfrestur er til 16. febrúar 2026, kl. 15:00.

Senda fyrirspurn.

EN

Lesa meira
 

Creative Europe bókmenntaþýðingar 2023 7.3.2023 16:00 Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er 7. mars 2023 kl. 16:00 að íslenskum tíma (17:00 CET).

Lesa meira
 

Kynningarfundur í Háskólanum á Akureyri um LIFE áætlunina 9.3.2023 14:30 - 16:00 Háskólinn á Akureyri, Borgir - R402

Ísland tekur nú þátt í LIFE áætlun Evrópusambandsins, samkeppnissjóði sem fjármagnað hefur verkefni á sviði loftslags- og umhverfismála frá árinu 1992. Kynningarfundur um LIFE verður haldin í Háskólanum á Akureyri 9. mars næstkomandi.

Lesa meira
 

Creative Europe samstarfsverkefni 9.3.2023 16:00 Umsóknarfrestur

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um samstarfsverkefni á sviði menningar og lista undir Creative Europe. Umsóknarfrestur er 9. mars 2023 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 16:00 að íslenskum tíma (17:00 CET).

Lesa meira
 

Fyrirtækjastyrkur - Vöxtur 15.3.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Lítil og meðalstór fyrirtæki.

Til hvers?

  • Vöxtur er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar.

Umsóknarfrestur:

Rann út mánudaginn 15. september 2025.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins sem finna má undir nytsöm skjöl og tenglar.

Lesa meira
 

Fyrirtækjastyrkur - Sproti 15.3.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Ung nýsköpunarfyrirtæki.

Til hvers?

Sproti er ætlaður til að styðja við verkefni á byrjunarstigi.

Umsóknarfrestur:

Rann út mánudaginn 15. september 2025.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins sem finna má undir nytsöm skjöl og tenglar.

Lesa meira
 

Fyrirtækjastyrkur - Markaður 15.3.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Markaður er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af rekstrargjöldum til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.

Til hvers?

Markaður er markaðsstyrkur til fyrirtækja sem skiptist í tvo ólíka flokka: Markaðsþróun og Markaðssókn. Þessum flokkum er ætlað að styðja við fyrirtæki á mismunandi stigum í undirbúningi afurðar á markað.

Nánari lýsing á styrktarflokkunum má finna í reglum sjóðsins hér að neðan.

Umsóknarfrestur

Rann út mánudaginn 15. september 2025.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins sem finna má undir nytsöm skjöl og tenglar.

Lesa meira
 

Bókasafnasjóður 15.3.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Öll bókasöfn sem falla undir bókasafnalög og reglur bókasafnasjóðs ein eða með öðrum bókasöfnum eða með öðrum aðilum sem hafa það að markmiði að efla bókasöfn í landinu.

Til hvers?

Sjóðurinn skal efla starfsemi bókasafna. Sjóðurinn styrkir skilgreindar rannsóknir og þróunar- og samstarfsverkefni á sviði bókasafna- og upplýsingamála. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja önnur verkefni til að efla faglegt samstarf bókasafna innanlands og utan.

Umsóknarfrestur var 17. mars 2025, kl 15:00. Næsti umsóknarfrestur í mars 2026.

Við úthlutun styrkja árið 2025 njóta forgangs umsóknir sem tengjast markmiðum bókasafnalaga (6.gr) um að efla lestraráhuga og upplýsingalæsi.

EN

Senda fyrirspurn

Lesa meira
 

Hljóðritasjóður/Tónlistarmiðstöð 15.3.2023 Umsóknarfrestur

Nýr tónlistarsjóður í umsýslu nýrrar Tónlistarmiðstöðvar tók við af Hljóðritasjóði samkvæmt tónlistarlögum í maí 2023.

SJÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR Á VEF TÓNLISTARMIÐSTÖÐVAR

EN

Lesa meira
 

Hagnýt rannsóknarverkefni 15.3.2023 15:00 Umsóknarfrestur, Tækniþróunarsjóður

Fyrir hverja?

Háskóla, opinberar rannsóknarstofnanir og opinber fyrirtæki.

Til hvers?

Hagnýt rannsóknarverkefni hafa það að markmiði að afla nýrrar þekkingar og kunnáttu sem nýtist til að þróa nýjar vörur, verkferla eða þjónustu eða til að koma í kring umtalsverðum endurbótum á eldri vörum, verkferlum eða þjónustu. Verkefnið þarf að vera með skýr og raunhæf markmið um hagnýtingu.

Umsóknarfrestur:

Var 17. febrúar 2025 kl. 15:00.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins sem finna má undir nytsöm skjöl og tenglar.

Lesa meira
 

Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna 27.3.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Sjálfstætt starfandi fræðimenn.

Til hvers?

Hægt er að sækja um styrki til að vinna að ritun fræðirita og –greina, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi. Á krafan um íslensku við allt ofannefnt.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur var 17. mars 2025 kl. 15:00 (umsóknarfrestur er einu sinni á ári, að vori).


Lesa meira
 

Opið fyrir framhaldsumsóknir um skattfrádrátt 3.4.2023 Umsóknarfrestur framhaldsumsókna

 Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2023 á miðnætti.

Lesa meira
 

Eurostars 13.4.2023 Umsóknarfrestur

 

Fyrir hverja? 

Eurostars er fyrir lítil og meðalstór nýsköpunarfyrirtæki (e. innovative SMEs), sem eru í alþjóðlegu samstarfi og stefna á markað.

Til hvers? 

Eurostars gerir smærri fyrirtækjum kleift að sameina og deila sérþekkingu utan landamæra.

Umsóknarfrestur

Næsti umsóknarfrestur í Eurostars-3 kall 9 verður 4. september 2025 kl. 14:00 CET (12:00 GMT). 

Opnað verður fyrir umsóknir þann 4. júlí 2025.

Sótt er um á miðlægum vef Eurostars

Stofna umsókn

EN

Lesa meira
 

Bláa hagkerfið - nýtt kall 14.4.2023 Umsóknarfrestur

Hið nýja samfjármögnunarverkefni um Bláa hagkerfið, „Sustainable Blue Economy Partnership“, hefur auglýst eftir umsóknum í fyrsta kall verkefnisins. Búið er að opna fyrir forumsóknir með umsóknarfresti til 14. apríl n.k. 

Lesa meira
 

Upplýsingafundur um LIFE 2023 19.4.2023 13:00 - 15:00 Borgartún 30, fundarsalur 3. hæð

Upplýsingafundur um nýjar auglýsingar eftir umsóknum í LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB.

Lesa meira
 

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna ESB um Circular bio-based Europe 20.4.2023 7:00 Hybrid fundur

Viðburðurinn verður haldinn 20. apríl nk. frá kl. 07:00 að íslenskum tíma. Þátttaka er möguleg í gegnum netið og/eða með viðveru i Brussel.

Lesa meira
 

Creative Europe: Styrkir til fjölmiðlaverkefna-samstarf/ Journalism Partnerships 27.4.2023 Umsóknarfrestur

Creative Europe styrkir aukið samstarf fjölmiðla sem meðal annars á að leiða til nýjunga í viðskiptaháttum, framleiðslu og dreifingu.

Lesa meira
 

Norræn vefstofa um tækifæri og áskoranir hug- og félagsvísinda í Horizon Europe 2.5.2023 11:00 - 12:45 Vefstofa

Norska rannsóknaráðið, Rannís og aðrar systurstofnanir á Norðurlöndum boða til samnorrænnar vefstofu “Ný tækifæri fyrir hug- og félagsvísindi í Horizon Europe”, þriðjudaginn 2. maí kl. 11:00

Lesa meira
 

Auglýst eftir umsóknum í Tónlistarsjóð 9.5.2023 Umsóknarfrestur

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þess.

Lesa meira
 

Hvernig á að skrifa samkeppnishæfa umsókn í Marie Curie áætlun Horizon Europe? 9.5.2023 9:00 - 17:00 Námskeið í umsóknarskrifum í Horizon Europe

Þann 9. og 10. maí nk. standa Rannís og Félag rannsóknastjóra fyrir námskeiði um hvernig skrifa eigi árangursríkar umsóknir í Marie Curie áætlun Horizon Europe. 

Lesa meira
 

Nýsköpun og viðskiptaþróun í Grikklandi 10.5.2023 Umsóknarfrestur

Uppbyggingarsjóður EES í Grikklandi auglýsir eftir umsóknum á sviði nýsköpunar og viðskiptaþróunar. Umsóknarfrestur er 10. maí nk.

Lesa meira
 

Þrjár vefstofur Horizon Europe 11.5.2023 8:00 - 10:00 Vefstofa

Vefstofurnar eru haldnar 11. maí, 24. maí og 8. júní 2023. Ekki er þörf á skráningu og þær eru einkum ætlaðar verkefnisstjórum, þátttakendum og öðrum aðilum sem taka þátt í eða tengjast styrktum verkefnum.

Lesa meira
 

Sjónvarpssjóður MEDIA 16.5.2023 Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er 16. maí næstkomandi.

Lesa meira
 

Upplýsingadagur COST - takið daginn frá 24.5.2023 8:00 - 9:30 Vefviðburður

Þann 24. maí nk. verður haldinn á netinu opinn upplýsingadagur COST. Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum.

Lesa meira
 

Efling samstarfs á Íslandi – rafræn vinnustofa 26.5.2023 9:00 - 11:00 Rafrænn viðburður

Vinnustofan er tileinkuð umskiptunum: heilbrigðari jarðvegur gegnum lifandi rannsóknarstofur (e. Living Labs). Vinnustofan er 26. maí næstkomandi frá klukkan 09:00-11:00.

Lesa meira
 

Rannís tekur þátt í Nýsköpunarviku 26.5.2023 10:15 - 11:15 Nýsköpunarvikan

Nýsköpunarvikan fer fram 22. - 26. maí nk. Hátíðin er haldin á Íslandi ár hvert en markmiðið er að auka aðgengi og sýnileika nýsköpunar á Íslandi og gefa fyrirtækjum og sprotum tækifæri á að kynna eigin nýsköpun.

Lesa meira
 

Vefstofa um fjármál í Horizon 2020 30.5.2023 8:00 - 9:30 Vefstofa

Vefstofan verður haldin 30. maí næstkomandi frá 8:00 - 09:30 að íslenskum tíma.

Lesa meira
 

Rafræn kynning á tækifærum innan Horizon Europe - klasa 5 30.5.2023 11:00 - 14:30 Rafrænn kynningarfundur

Tækifæri innan klasa 5 - loftslagsmál, orka og samgöngur verða kynnt á rafrænum viðburði 30. maí næstkomandi, kl 11:00-14:30 að íslenskum tíma.

Lesa meira
 

Málþing um plastmengun á norðurslóð 1.6.2023 Call for abstracts

Skilafrestur á innsendingu útdrátta til kynningar á ráðstefnunni var 1. júní 2023. Málþingið fer fram í Reykjavík 22. - 23. nóvember 2023.

Lesa meira
 

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Horizon Europe - heilbrigðismál 1.6.2023 7:00 Upplýsingadagur

Upplýsingadagurinn og tengslaráðstefnan verða haldin 1. og 2. júní 2023 á netinu. 

Lesa meira
 

Tengslamót (brokerage event) fyrir heilbrigðisvísindi og félags- og hugvísindi (SSH) í Horizon Europe 5.6.2023 París, Frakklandi

Tengslamótið verður haldið í París mánudaginn 5. júní 2023 frá kl. 09:00-17:00 að staðartíma.

Lesa meira
 

Verum græn með Erasmus+ 7.6.2023 14:00 - 17:00 Veröld, Húsi Vigdísar Finnbogadóttur hjá HÍ

Ráðstefna 7. júní 2023 kl.14-17 í Veröld - húsi Vigdísar og í streymi.

Lesa meira
 

Vorfundur Tækniþróunarsjóðs 8.6.2023 15:00 - 17:00 Sjálfstæðissalurinn við Austurvöll (Gamla Nasa)

Vorfundur Tækniþróunarsjóðs verður haldinn fimmtudaginn 8. júní, undir yfirskriftinni: Sóknarfæri Íslands

Lesa meira
 

Horizon Results Platform: Tækifæri fyrir ERC styrkþega 12.6.2023 13:30 - 14:30 Vefstofa

Um er að ræða vefstofu þann 12. júní næstkomandi.

Lesa meira
 

Samfjármögnunin umbreyting heilbrigðisþjónustu (Transforming health and care systems, THCS), - umsóknarfrestur 14.6.2023 Umsóknarfrestur

Fyrsta kallið "Healthcare of the future" hefur verið birt.

Lesa meira
 

Upplýsingafundur um Marie Skłodowska-Curie (MSCA) Doctoral Networks 14.6.2023 7:30 - 10:30 Rafrænn viðburður

Rafrænn upplýsingafundur þann 14. júní næstkomandi frá klukkan 7:30-10:30 að íslenskum tíma (9:30-12:30 CEST).

Lesa meira
 

Rannsóknasjóður 15.6.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Rannsakendur, rannsóknarhópar og nemendur í rannsóknatengdu framhaldsnámi við íslenska háskóla og rannsóknastofnanir og fyrirtæki á Íslandi.

Til hvers?

Rannsóknasjóður veitir styrki til skilgreindra rannsóknaverkefna og rannsóknatengds framhaldsnáms á Íslandi.

Umsóknarfrestur

Var 13. júni 2025, kl. 15:00.

Umsóknir skulu vera á ensku.

EN

Lesa meira
 

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Horizon Europe - samfélagslegt öryggi 27.6.2023 - 28.6.2023 Upplýsingadagur og tengslaráðstefna

Upplýsingadagurinn verður haldinn 27. júní (hybrid) og tengslaráðstefnan þann 28. júní 2023 í Brussel.

Lesa meira
 

Nýsköpun í heilbrigðis- og velferðarþjónustu 18.7.2023 Veffundur

Evrópuverkefnið DigitalHealthUptake hefur opnað fyrir umsóknir um samstarfsverkefni milli Evrópulanda. Markmiðið er að miðla þekkingu frá einu svæði/landi til annars og auðvelda innleiðingu á stafrænum nýsköpunaraðferðum í heilbrigðis- og velferðarþjónustu

Lesa meira
 

Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð og skattfrádrætti 16.8.2023 8:30 - 10:00 Kynningarfundur

Samtök iðnaðarins, Samtök sprotafyrirtækja og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð og Skattfrádrætti rannsókna- og þróunarkostnaðar miðvikudaginn 16. ágúst kl. 8:30-10:00 í fundarsalnum Hyl, 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Lesa meira
 

Orkuskipti - CET samfjármögnun 2023 23.8.2023 12:00 - 14:00 Norrænn kynningarfundur

Auglýst er eftir umsóknum tengdum orkuskiptum. Bendum einnig á margskonar viðburði og fundi tengda kallinu.

Lesa meira
 

Opið fyrir umsóknir í Fræ/Þróunarfræ 24.8.2023 Umsóknarfrestur

Fræ og Þróunarfræ hafa það að markmiði að styðja við hugmyndir og verkefni á frumstigi sem geta leitt af sér stærri þróunarverkefni. Umsóknir sem berast fyrir 24. ágúst næstkomandi verða teknar fyrir af fagráði sjóðsins í næstu lotu.

Lesa meira
 

Velkomin á Nordplus Café! 28.8.2023 12:00 Rafrænn upplýsingafundur

Þann 28. ágúst næstkomandi kl. 12:00 verður rafrænn upplýsingafundur haldinn um næsta umsóknarfrest í Nordplus en þá verður hægt að sækja um styrk til að fara í undirbúningsheimsóknir. 

Lesa meira
 

Rannís í Vestmannaeyjum - Tækifæri og styrkir á sviði menntunar og menningar 31.8.2023 15:00 Viska

Mennta- og menningarsvið Rannís sækir Vestmannaeyjar heim og fundar í húsnæði Visku að Ægisgötu 2, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 31. ágúst, kl.15:00.

Lesa meira
 

Námskeið um ungmennaskipti fyrir íþróttafélög og aðrar stofnanir 12.9.2023 9:00 - 17:00 Námskeið

Námskeiðið er um ungmennaskipti í æskulýðshluta Erasmus+ áætlunarinnar og er fyrir íþróttafélög, íþróttahreyfingar, íþróttasamtök. Námskeiðið fer fram þann 12. september næstkomandi.

Lesa meira
 

Norrænar orkulausnir fyrir græn umskipti 14.9.2023 Umsóknarfrestur

Auglýst eftir umsóknum í Norrænt samstarfsverkefni. Umsóknarfrestur er 14. september 2023.

Lesa meira
 

Evrópumerkið / European Language Label 20.9.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Fyrir tungumálakennara og / eða aðra sem koma að nýsköpun og tækniþróun tungumálakennslu.

Til hvers?

Mennta- og barnamálaráðuneytið og Rannís veita viðurkenningu fyrir nýbreytniverkefni á sviði tungumálanáms og kennslu. Tilbúin tungumálaverkefni geta sóst eftir Evrópumerkinu sem er gæðastimpill á verkefnið.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur fyrir 2023 er liðinn. Næst verður Evrópumerkið veitt árið 2025.

Upplýsingar um forgangsatriði 2023-2024

Forgangsatriði 2023-2024.

Lesa meira
 

Óskað eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrskarandi vísindamiðlun 20.9.2023 Tilnefning

Viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun verður veitt á Vísindavöku 2023 sem haldin verður í Laugardalshöll laugardaginn 30. september. Viðurkenningin verður afhent við opnun Vísindavöku kl. 13:00.

Lesa meira
 

Geta tölvur skapað? Spjall um skapandi gervigreind 25.9.2023 20:00 - 21:30 Vísindakaffi

Fyrsta Vísindakaffi Rannís verður tileinkað gervigreind en Þórhallur Magnússon rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands mun fjalla um hana 25. september kl. 20:00-21:30 á kaffihúsinu Bókasamlaginu, Skipholti 19.

Lesa meira
 

Heilahreysti alla ævi: Hvað getur þú gert? 26.9.2023 20:00 - 21:30 Vísindakaffi

María Kristín Jónsdóttir taugasálfræðingur mun fjalla vítt og breitt um heilahreysti á Vísindakaffi Rannís þriðjudaginn 26. september kl. 20:00-21:30 á kaffihúsinu Bókasamlaginu Skipholti 19.

Lesa meira
 

Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Horizon Europe 27.9.2023 - 28.9.2023 Upplýaingadagur: Fæða, lífhagkerfi, náttúruauðlindir, landbúnaður, umhverfi

Upplýsingadagar og tengslaráðstefna verður haldin á vegum framkvæmdastjórnar ESB 26.-28. september nk. í tengslum við vinnuáætlun Horizon Europe á sviði matvælaframleiðslu, lífhagkerfis, náttúruauðlinda, landbúnaðar og umhverfismála.

Lesa meira
 

Dulin virkni Eurovision 27.9.2023 20:00 Vísindakaffi

Síðasta Vísindakaffið þann 27. september verður tekin fyrir hin sívinsæla Eurovision keppni, en Baldur Þórhallsson prófessor við HÍ og Hera Melgar Aðalheiðardóttir MA í alþjóðasamskiptum, munu fjalla um dulda virkni Eurovision. Vísindakaffið er haldið í Bóksasamlaginu Skipholti 19 og hefst klukkan 20:00.

Lesa meira
 

Vísindakaffi á Hólmavík - Á þjóðsagnaslóðum á Norður-Ströndum 28.9.2023 20:00 Vísindakaffi

Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofa stendur fyrir Vísindakaffi fimmtudaginn 28. september kl. 20:00 í Sauðfjársetrinu Sævangi.

Lesa meira
 

Vísindakaffi Breiðdalsvík - Jarðgæði frá bújörðum til háfjalla 29.9.2023 17:00 Vísindakaffi

Fimmtudaginn 29. september kl. 17:00 stendur Rannsóknasetur Háskóla Íslands fyrir Vísindakaffi í Gamla kaupfélaginu.

Lesa meira
 

Uppbyggingarsjóður EFTA auglýsir styrki til listamannadvalar í Rúmeníu 30.9.2023 Umsóknarfrestur

Tvíhliða samstarf er skilyrði og umsóknarfrestur rennur út 30. september næstkomandi.

Lesa meira
 

Vísindavaka 30. september 2023 í Laugardalshöll 30.9.2023 Laugardalshöll

Á Vísindavöku geta gestir rölt um sýningarsvæðið sjálft sem er miðpunktur Vísindavöku, spjallað við vísindafólk og fræðst um rannsóknir þess. 

Lesa meira
 

Nordplus Junior 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum, kennara þeirra og nemendur.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsneta og þróunarverkefna skóla. Ferðastyrkir vegna nemendaheimsókna, kennaraskipta, þjálfun nema í starfsnámi og undirbúningsheimsóknir. Skólarnir sækja um og er gerð krafa um samstarf tveggja landa (í námsferðum) eða þriggja landa (í verkefnum). 

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Opna umsóknakerfi

Opið er fyrir umsóknir. Næsti umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026.

Nánari upplýsingar

Lesa meira
 

Nordplus Voksen 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Stofnanir á sviði fullorðinsfræðslu, starfsþjálfunar og óformlegrar menntunar á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum, kennarar þeirra, starfsmenn og nemendur.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsneta og þróunarverkefna skóla. Ferðastyrkir vegna nemendaheimsókna, heimsókna kennara og stjórnenda og undirbúningsheimsóknir. Skólarnir sækja um og er gerð krafa um samstarf tveggja landa (í námsferðum) eða þriggja landa (í verkefnum).

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Opna umsóknakerfi

Opið er fyrir umsóknir. Næsti umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026.

 

Lesa meira
 

Nordplus Sprog 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Alla sem starfa að kennslu og miðlun norrænna tungumála og norrænna minnihlutatungumála á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum.

Til hvers?

Aðaláhersla tungumálahluta Nordplus er á verkefni sem vinna með að auka norrænan málskilning. Dæmi um það getur verið að þróa námsefni, tölvuleiki eða öpp, rannsóknir, fræðsla, ráðstefnur o.fl.

Einnig er hægt að sækja um styrk til að stofna samstarfsnet á sviði norrænna tungumála.

Lágmarksþátttaka er tvö þátttökulönd og athugið að umsóknum skal skilað á dönsku, sænsku, norsku eða ensku.

Upplýsingablað um Nordplus norrænu tungumálaáætlunina

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Opna umsóknakerfi

Opið er fyrir umsóknir. Næsti umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026.

Lesa meira
 

Listamannalaun 2.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur,  tónskáld og kvikmyndahöfunda. Sjá nánar undir Spurt og svarað.

Tilgangur

Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög [ 57/2009.]

Umsóknarfrestur vegna listamannalauna 2026.

Umsóknarfrestur var 1. október 2025, kl 15:00. 

 
Sjá tilkynningu um að opnað hafi verið fyrir umsóknar sem var birt 6. ágúst 2025. 

Mánaðarleg upphæð listamannalauna árið 2025 er 560.000 kr.

Senda fyrirspurn

EN

Lesa meira
 

Sviðslistasjóður 2.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?
Atvinnusviðslistahópa.

Til hvers?
Veittir eru styrkir til einstakra verkefna.

Úthlutun.
Að jafnaði liggur úthlutun fyrir í janúar ár hvert.

Umsóknarfrestur í Sviðslistasjóð 2025
Umsóknarfrestur 1. október 2025, kl 15:00. 

Umsækjendur eru hvattir til að skila ekki umsókn á síðasta degi.
Sjá auglýsingu eftir umsóknum sem var birt 6. ágúst 2025.
Tímalengd verkefna í 2026 úthlutun miðast við leikárið 2026-27 og/eða 2027-28.

EN

Lesa meira
 

Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna 2.10.2023 Umsóknarfrestur fyrir ný verkefni

Fyrir hverja?

Öll fyrirtæki sem eru eigendur rannsóknar- eða þróunarverkefna sem, þau bera sjálf fjárhagslega áhættu af. Háskólar og stofnanir teljast ekki fyrirtæki í skilningi þessara laga (lög nr. 152/2009).

Sjá einnig skilgreiningu hér neðar á síðunni.

Til hvers?

Markmiðið er að efla rannsóknir og þróunarstarf og bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja með því að veita þeim rétt til skattfrádráttar vegna kostnaðar við nýsköpunarverkefni.

Umsóknarfrestur: 

  • Umsóknarfrestur rennur út 1. október fyrir ný verkefni klukkan 23:59

  • Verður 1. apríl fyrir framhaldsverkefni klukkan 23:59.

EN

Lesa meira
 

Jules Verne 2.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Rannsóknastofnanir og rannsóknahópar á háskólastigi; vísinda- og fræðimenn á öllum sviðum grunnvísinda og hagnýtra rannsókna (þátttaka doktorsnema eða þeirra sem nýlega hafa lokið doktorsnámi skilyrði).

Til hvers?

Til samstarfsverkefna á sviði vísinda og tækni milli Íslands og Frakklands.

Umsóknarfrestur

19. september 2025, kl. 15:00.

Auglýst er eftir umsóknum á tveggja ára fresti.

EN

Lesa meira
 

SEF - Samstarfsnefnd um endur­menntun framhalds­skóla­kennara 5.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Framhaldsskóla og faggreinafélög framhaldsskólakennara sem bjóða endurmenntun, fyrirlestra og ráðstefnur.

Til hvers?

Hægt er að sækja um styrki til að skipuleggja sumarnámskeið framhaldsskólakennara, gestafyrirlestur á vegum fagfélags, þátttöku í ráðstefnum og vettvangsnám. Sótt er um ráðstefnu- og gestafyrirlesarastyrki að hausti en fyrir styrki til að halda sumarnámskeið að vori. 


Opnað verður fyrir umsóknir um sumarnámskeið 2026 í ársbyrjun 2026 og umsóknarfrestur þá auglýstur.
Opið var fyrir umsóknir um gestafyrirlesara og ráðstefnustyrki 2026 til 7 okt 2025 kl 15.


Senda fyrirspurn.

 EN

Lesa meira
 

Framkvæmdadagar Horizon 2023 5.10.2023 7:30 - 10:30 Veffundur

Í tilefni framkvæmdadaga Horizon (Horizon Implementations Days) er boðið upp á þrjá fundi á netinu í október næstkomandi.

Lesa meira
 

Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla 6.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Kennara, náms- og starfsráðgjafa, skólameistara og aðra stjórnendur framhaldsskóla sem starfað hafa í a.m.k. fimm ár við kennslu- eða stjórnunarstörf í framhaldsskóla. Þeir ganga fyrir sem ekki hafa hlotið launað námsorlof áður (frá grunn- eða framhaldsskólakennslu).

Til hvers?

Tilgangur námsorlofs er að veita þeim sem um það sækja tækifæri til að efla þekkingu sína og hæfni í starfi.

Umsóknarfrestur var 7. október 2025 kl. 15:00


Senda fyrirspurn.

EN

Lesa meira
 

Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Horizon Europe 11.10.2023 - 19.10.2023 Upplýsingadagar Horizon Europe

Upplýsingadagar og tengslaráðstefna framkvæmdastjórnar ESB verður haldin 11. til 19. október nk. í tengslum við vinnuáætlun klasa 4, stafræn tækni, iðnaður og geimur (Digital, Industry & Space). Um er að ræða viðburð á netinu.

Lesa meira
 

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Horizon Europe 17.10.2023 Upplýsingadagar Horizon Europe

Dagana 17. og 18. október 2023 stendur framkvæmdastjórn ESB fyrir upplýsingadegi og tengslaráðstefnu um köll ársins 2024 í klasa 5; loftslagsmál, orka og samgöngur (Climate, Energy and Mobility). Um er að ræða viðburð á netinu.

Lesa meira
 

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Horizon Europe - félags- og hugvísindi 18.10.2023 - 19.10.2023 Upplýsingadagar Horizon Europe

Dagana 18.-19. október stendur framkvæmdastjórn ESB fyrir upplýsingadegi og tengslaráðstefnu um næstu köll í klasa 2, félags- og hugvísindi (Culture, Creativity and Inclusive Society). Um er að ræða viðburð á netinu. 

Lesa meira
 

Sóknarstyrkir - stuðningur við sókn í erlenda sjóði 20.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Háskólar, stofnanir og fyrirtæki sem sækja um styrki í alþjóðlega rannsóknasjóði geta sótt um Sóknarstyrki. Forgangur er veittur umsóknum í Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB og norræn samfjármögnunarverkefni, t.d. NordForsk.

Styrkir eru eingöngu greiddir inn á bankareikinga íslenskra stofnana eða lögaðila og umsækjandi um Sóknarstyrk þarf að gegna starfi við bókhaldsstofnun umsóknar.

Til hvers?

Að styrkja íslenska lögaðila í að undirbúa sókn í alþjóðlega rannsóknasjóði og samstarfsáætlanir sem Ísland er aðili að.

Umsóknarfrestur

Opið er fyrir umsóknir allt árið. 

Óvissa er með fjárveitingu til sóknastyrkja fyrir næstu úthlutun.

Sótt er um í gegnum mínar síður Rannís.

EN

Lesa meira
 

Nýsköpunarþing 2023 - Líf í lífvísindum 26.10.2023 13:30 - 15:00 Gróska

Nýsköpunarþing 2023 verður haldið fimmtudaginn 26. október í Grósku frá kl. 13:30-15.00.

Lesa meira
 

Innviðasjóður 1.11.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Háskóla, opinberar rannsóknastofnanir og fyrirtæki.

Til hvers?

Fjármögnun kaupa á dýrum rannsóknartækjum, uppbyggingu rannsóknarinnviða og aðgangs að rannsóknarinnviðum.

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur rann út 6. nóvember 2025 kl 15:00.

EN

Lesa meira
 

Styrkir og tækifæri fyrir skapandi greinar innan ESB 6.11.2023 13:00 Vefstofa

Vefstofa fyrir stofnanir, félög og fyrirtæki mánudaginn 6. nóvember næstkomandi kl. 13:00. Nauðsynlegt að skrá sig.

Lesa meira
 

Vinnustaða­náms­sjóður 7.11.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hvern?

Fyrirtæki og stofnanir vegna vinnustaðanáms nema í iðnnámi eða öðru námi á framhaldsskólastigi þar sem vinnustaðanám og starfsþjálfun er skilgreindur hluti námsins.  Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.

Til hvers?

Að stuðla að eflingu vinnustaðanáms og fjölga tækifærum nema til starfsþjálfunar.

Umsóknarfrestur til að sækja um styrk fyrir nema í vinnustaðanámi á tímabilinu 1. nóvember 2024 til 31. október 2025 er 17. nóvember 2025, kl 15:00. 

Sjá auglýsingu eftir umsóknum sem var birt 1. október 2025.
ATH: Sjá uppfærðar úthlutunarreglur vinnustaðanámssjóðs frá 25. september 2025.
Forsenda styrkveitingar er að með umsókn fylgi undirritaður vinnustaðanámssamningur úr rafrænni ferilbók nemandans. Tilsjónarmenn nema hjá vinnustað geta nálgast námssamning í ferilbók. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) hefur umsjón með innleiðingu rafrænnar ferilbókar í vinnustaðanámi.  


Sjá kynningarmyndband frá miðstöð menntunarog skólaþjónustu um ferilbók nema þar sem hægt er að nálgast námssamning
Sjá fleiri kynningarmyndbönd og leiðbeiningar um rafræna ferilbók hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem hefur umsjón með innleiðingu rafrænnar ferilbókar í vinnustaðanámi.

Senda fyrirspurn

Sjá nánar um úthlutunarferlið.

EN

Lesa meira
 

Samstarf milli Bretlands og Íslands á sviði rannsókna á norðurslóðum 20.11.2023 10:00 - 12:00 Kynningarfundur

Um er að ræða nýtt samstarf (United Kingdom – Iceland Arctic Science Partnership Scheme) fyrir vísindafólk með aðsetur í Bretlandi og Íslandi að sækja sameiginlega um allt að 20 þúsund pund vegna rannsóknaverkefna 2024-2025. 

Lesa meira
 

Morgunverðarfundur fyrir náms- og starfsráðgjafa 22.11.2023 10:00 - 11:30 Hilton Reykjavík Nordica

Euroguidance og Félag náms- og starfsráðgjafa bjóða til morgunverðarfundar fyrir náms- og starfsráðgjafa, miðvikudaginn 22. nóvember.

Lesa meira
 

Samtal um græna styrki á Akureyri 22.11.2023 12:00 - 13:00 Borgir

Rannís og Samband Íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við SSNE og Eim, standa fyrir opnum hádegisfundi á Akureyri þann 22. nóvember næstkomandi.

Lesa meira
 

Mennta­rannsókna­sjóður mennta- og barnamálaráðherra 23.11.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Umsækjendur: Vísindafólk og doktorsnemar í rannsóknatengdu námi á sviði menntavísinda við íslenska háskóla og rannsóknastofnanir. Samstarfsaðilar (meðumsækjendur): fagfólk á sviði menntamála, s.s. við leik-, grunn- og framhaldsskóla, sveitarfélög, félagasamtök og fyrirtæki.
Sjá nánar hverjir geta sótt um neðar á síðunni.

Til hvers?

Sjóðurinn styrkir hagnýtar menntarannsóknir á sviði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og frístundastarfs. Markmið menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.

Umsóknarfrestur

Var framlengur til 26. nóvember 2025, kl. 15:00. Var áður 21. nóvember. 

Lesa meira
 

Alþjóðastarf í starfsmenntun, það borgar sig! 27.11.2023 14:00 - 16:30 Nauthóll

Málstofa um alþjóðastarf í starfsmenntun verður haldin á Nauthóli, mánudaginn 27. nóvember kl. 14:00-16:30. Kynnt verður rannsókn sem gerð var meðal nemenda í starfsmenntun sem hafa farið í starfsþjálfun til Evrópu með styrk frá Erasmus+ áætluninni, en þau telja reynsluna verulega verðmæta, bæði faglega og félagslega. 

Lesa meira
 

Samtal um græna styrki á Ísafirði 27.11.2023 16:00 - 17:30 Vestfjarðastofa

Rannís, Samband íslenskra sveitarfélaga og Vestfjarðastofa munu standa fyrir opnum fundi á Ísafirði þann 27. nóvember næstkomandi.

Lesa meira
 

Veist þú hvað "cascade" fjármögnun er? 30.11.2023 9:00 - 10:30 Rafrænn upplýsingafundur

Cascade fjármögnun er ákveðin aðferð Evrópusambandsins til að dreifa opinberu fé og skapa tækifæri fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki til að innleiða eða þróa t.d. stafræna tækni.

Lesa meira
 

Opið fyrir köll í nýsköpunarsjóð framkvæmdastjórnar ESB 30.11.2023 9:00 - 11:30 Í streymi (online)

Kynningarfundir verða haldnir 30. nóvember og 7. desember

Lesa meira
 

Samtal um græna styrki á Egilsstöðum 30.11.2023 14:00 - 15:30 Hybrid fundur

Rannís, Samband íslenskra sveitarfélagaAusturbrú og Eygló standa fyrir opnum fundi um græna styrki á Egilsstöðum þann 30. nóvember næstkomandi.

Lesa meira
 

Arctic Research and Studies - Norðurslóðafræði 1.12.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Fyrir starfsmenn háskóla og stofnana sem tengjast norðurslóðafræðum.

Til hvers?

Til að efla langtíma samstarf íslenskra og norskra stofnana með sóknarstyrkjum vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði.

Umsóknarfrestur

Deadline for applications is on 15. December 2025 (15:00 UTC).

EN

Lesa meira
 

Áttunda norræna-kínverska norðurslóðaráðstefnan 3.12.2023 - 6.12.2023 Ráðstefna

Vakin er athygli á því að áttunda norræna-kínverska norðurslóðaráðstefnan verður haldin í Guangzhou í Kína, 3. - 6. desember 2023. Ráðstefnan er helguð vísindasamvinnu og þekkingu í þágu sjálfbærni á norðurslóðum. 

Lesa meira
 

Námskeið fyrir byrjendur í umsóknaskrifum í Horizon Europe 4.12.2023 - 5.12.2023 9:00 - 12:00 Námskeið

Sérfræðingar Rannís bjóða upp á tvö námskeið í umsóknarskrifum þann 4. og 5. desember nk. frá klukkan 9:00-12:00. Fyrra námskeiðið verður haldið á staðnum og er takmarkaður sætafjöldi í boði. Seinna námskeiðið er á netinu.

Lesa meira
 

NordForsk rannsóknaverkefni á sviði grænna umskipta 5.12.2023 Umsóknarfrestur

Á vegum NordForsk hefur verið opnað fyrir umsóknir um verkefnastyrki innan Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á sviði grænna umskipta. Umsóknarfrestur er til 5. desember 2023.

Lesa meira
 

Creative Europe vinnustofa um samstarfsverkefni 7.12.2023 10:00 Rafrænn viðburður

Creative Europe / Rannís – býður til vinnustofu um umsóknarferil evrópskra samstarfsverkefna fimmtudaginn 7. desember næstkomandi kl. 10:00 

Lesa meira
 

Erasmus+ býður í aðventukaffi 7.12.2023 14:30 Borgartún 30, fundarsalur 3. hæð

Fimmtudaginn 7. desember kl. 14:30 hjá Rannís, Borgartúni 30.

Langar þig að fræðast um Erasmus+ áætlunina og þau tækifæri sem eru í boði með óformlegu kaffispjalli á aðventunni?

Lesa meira
 

Rafrænn kynningarfundur um Nordplus 8.12.2023 10:00 - 11:00 Fjarfundur

Nordplus er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig. Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 1. febrúar 2024 og því verður haldinn kynningarfundur á Teams þann 8. desember 2023 kl. 10:00 - 11:00. 

Lesa meira
 

Tónlistarsjóður/Tónlistarmiðstöð 12.12.2023 Umsóknarfrestur

Nýr tónlistarsjóður í umsýslu nýrrar Tónlistarmiðstöðvar tók við af fyrri tónlistarsjóði samkvæmt tónlistarlögum í maí 2023.

SJÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR Á VEF TÓNLISTARMIÐSTÖÐVAR

EN 

Lesa meira
 

Opið fyrir umsóknir í Digital Europe 12.12.2023 8:30 - 15:00 Rafrænn viðburður

Þann 21. nóvember sl. opnaði fimmta umferð Digital Europe áætlunarinnar og er umsóknarfrestur 21. mars 2024.

Lesa meira
 

Haustfundur Tækniþróunarsjóðs 2023 14.12.2023 15:00 - 16:00 Gróska

Haustfundur Tækniþróunarsjóðs 2023 verður haldinn fimmtudaginn 14. desember, kl. 15:00-16:00 í Grósku.

Lesa meira
 

Langar þig í nám erlendis? 19.12.2023 16:00 Kex Hostel

Upplýsingastofa um nám erlendis og SÍNE standa fyrir kynningarfundi um nám erlendis, þriðjudaginn 19. desember kl. 16:00 á Kex hostel.

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica