Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum

1.10.2025

Auglýst er eftir umsóknum um styrki vegna vinnustaðanáms nema á tímabilinu 1. nóvember 2024 til 31. október 2025. Umsóknarfrestur til 17. nóvember kl. 15:00.

Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla. Forsenda styrkveitingar er að fyrir liggi staðfestur vinnustaðanámssamningur sem stofnaður hefur verið í rafrænni ferilbók nemandans.

Umsóknarfrestur er 17. nóvember 2025, kl. 15:00.

Athugið: Úthlutunarreglur vinnustaðanámssjóðs voru uppfærðar 25. september 2025. 

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Umsóknargögn og leiðbeiningar 

Umsóknum skal skilað á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar veitir
Tölvupóstfang: vinnustadanamssjodur@rannis.is
Sími: 515 5839 / 515 5843









Þetta vefsvæði byggir á Eplica