Gönguhermir - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði

11.12.2012

Þróunarfélagið Stika hefur lokið fyrsta áfanga í hönnun og prófunum gönguhermis fyrir börn með hreyfihamlanir til notkunar heima eða í leikskóla/skóla.

Heiti verkefnis: Gönguhermir
Verkefnisstjóri: Haraldur Haukur Þorkelsson
Stuðningsþegi: Þróunarfélagið Stika/Háskóli Íslands
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2009
Fjárhæð styrks: 8,5 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: RAN090303-0259

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.

Gönguhermir á að koma í staðinn fyrir standgrindur sem eru notaðar fyrir börn sem geta ekki staðið sjálf. Börnin fá stuðning til að standa í tækinu og fætur þeirra eru annaðhvort hreyfðir eða þau fá aðstoð til að hreyfa fætur eins og þau séu að ganga. Hægt er að laga hreyfinguna að hvaða einstaklingi sem er.

Tilgátan er sú að tæki sem leyfir þungaburð sem kemur og fer (er ekki stöðugur) auki beinþéttni meira en hefðbundin standgrind. Einnig er hugsanlegt að tæki sem hreyfir (eða hjálpar að hreyfa) neðri útlimi geti betur unnið á móti þróun á skekkjum og bætt hreyfistjórn.

Þróunarfélagið Stika þróaði tækið í samstarfi við Samey ehf. og er tækið nú tilbúið til frekari prófana,  rannsókna,  undirbúnings markaðsóknar og fjöldaframleiðslu.

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica