Starfsemi Rannís er enn í fullum gangi en lokað er fyrir komur á skrifstofu
Rannís hefur lokað tímabundið fyrir komur á skrifstofu sína að Borgartúni 30 vegna samkomutakmarkana.
Við viljum þó aðstoða viðskiptavini okkar eins og kostur er.
Unnt er að hafa samband við starfsmenn á skrifstofutíma en netföng og bein símanúmer þeirra er að finna undir vefslóðinni: www.rannis.is/starfsemi/starfsmenn
Einnig er hægt að ná sambandi í gegnum skiptiborðið í síma 515 5800 eða með því að senda tölvupóst á móttöku: rannis(hja)rannis.is
Við erum öll almannavarnir!