Auglýst eftir umsóknum í Bókasafnasjóð

1.2.2024

Öll bókasöfn sem falla undir bókasafnalög geta sótt um styrki, ein eða í samstarfi með öðrum bókasöfnum eða með aðilum sem hafa það að markmiði að efla bókasöfn í landinu. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2024 kl. 15:00.

  • Bokasafnasjodur

Bókasafnasjóður styrkir skilgreindar rannsóknir og þróunar- og samstarfsverkefni á sviði bókasafns- og upplýsingamála. Sjóðnum er heimilt að styrkja önnur verkefni til að efla faglegt samstarf bókasafna innanlands og utan.
Ath. Við úthlutun styrkja í ár njóta forgangs umsóknir sem tengjast markmiðum bókasafnalaga (6.gr) um að efla lestraráhuga og upplýsingalæsi.

Umsóknarfrestur er 15. mars 2024 kl. 15:00.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.

Hægt er að senda fyrirspurn á bokasafnasjodur@rannis.is til að fá nánari upplýsingar eða hringja í 515 5838 / 515 5839..









Þetta vefsvæði byggir á Eplica