Auglýst eftir umsóknum í Æskulýðssjóð

11.1.2021

Búið er að opna fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð. Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til 15. febrúar 2020 klukkan 15:00. Athugið breyttan tíma!

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka: 

  1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra
  2.  Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða
  3. Nýjungar og þróunarverkefni
  4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem t.d. þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa

Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum.

Sérstök áhersla verður að þessu sinni að styrkja verkefni sem stuðla að nýsköpun í æskulýðsstarfsemi.

Hægt er að sækja um styrk tvisvar á ári. Seinni umsóknarfresturinn er 15. október 2021.

Sjá nánar á vefsíðu sjóðsins









Þetta vefsvæði byggir á Eplica