Auglýst er eftir umsóknum í Æskulýðssjóð

25.8.2021

Búið er að opna fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð. Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til föstudagsins 15. október 2021 klukkan 15:00. 

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

  • Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra
  • Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða
  • Nýjungar og þróunarverkefni
  • Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem t.d. þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa

Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum.

Sérstök áhersla verður að þessu sinni að styrkja verkefni sem stuðla að virkni og félagslegri þátttöku.

Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til föstudagsins 15. október 2021 klukkan 15:00.

Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á vef sjóðsins.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica