Auglýst eftir umsóknum í Íþróttasjóð

29.8.2017

Umsóknarfrestur er 2. október 2017, kl. 17:00.

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði.

Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:

  • sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  • útbreiðslu- og fræðsluverkefna
  • íþróttarannsókna
  • verkefna samkvæmt 13. gr. Íþróttalaga .

Nánari upplýsingar um sjóðinn.

Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 2. október 2017 kl.17.00. Rannís hefur umsjón og eftirlit með Íþróttasjóði. Umsóknum skal skila á rafrænu formi. 

Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica