Auglýst eftir umsóknum í Íþróttasjóð

24.8.2021

Búið er að opna fyrir umsóknir í Íþróttasjóð vegna verkefna fyrir árið 2022. Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 föstudaginn 1. október 2021.

Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna, sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að jafnrétti í íþróttum
  • Íþróttarannsókna
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga

Umsóknarfrestur er til kl.15.00 föstudaginn 1. október 2021.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins

Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.

Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson í netfanginu andres.petursson@rannis.is eða í GSM síma 699 2522









Þetta vefsvæði byggir á Eplica