Auglýst eftir umsóknum í Þróunarsjóð námsgagna
Umsóknarfrestur er 15. febrúar 2024, kl. 15:00. Hlutverk Þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
Við úthlutun verður tekið tillit til hvort námsefnið styðji við grunnþætti menntunar og hversu aðgengilegt það verður nemendum. Forgangsatriðin í ár eru:
1. Námsefni ætlað börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn vegna tungumálakennslu.
2. Námsefni sem styður við stærðfræði og náttúrugreinar.
3. Námsefni sem miðar að markvissri eflingu íslensks orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum.
Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á. Hægt verður að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 2,0 milljónir króna, en einnig hægt að sækja um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 4,0 milljónir króna. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita að hámarki tveimur umsóknum þennan hámarksstyrk, að skilyrðum settum.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2024 kl. 15.00.
Umsókn skal skilað á rafrænu formi. Sjá frekari upplýsingar um sjóðinn.