Auglýst eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki

1.9.2015

SEF (Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara) auglýsir eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki. Umsóknarfrestur er 1. október 2015.

Um er að ræða styrki fyrir:    

  1. Skólameistara framhaldsskóla: sem tilnefnir 1-2 kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrksupphæð er 200.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur skólameistari sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi í skólanum að hámarki 30.000 krónur.
  2. Faggreinafélög: sem tilnefna 1-2 stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrksupphæð er 200.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur faggreinafélagið sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi fyrir félagið að hámarki 30.000 krónur.

Ferðatímabilið / gestafyrirlesturinn í þessari umsóknarumferð er 1. nóvember  2015 -1. október 2016. Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist skólanum, kennurunum og skólasamfélaginu. Stjórn SEF mun meta umsóknir og vel unnin umsókn er skilyrði fyrir styrkveitingu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica