Auglýst eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki

17.8.2020

SEF (Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara) auglýsir eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki. Umsóknarfrestur er 6. október 2020, kl. 16:00.

Um er að ræða styrki fyrir:

  1. Skólameistara framhaldsskóla: sem tilnefnir 1-2 kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrksupphæð er 250.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur skólameistari sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi í skólanum að hámarki 80.000 krónur.
  2. Faggreinafélög: sem tilnefna 1-2 stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrksupphæð er 250.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur faggreinafélagið sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi fyrir félagið að hámarki 80.000 krónur.

Ferðatímabilið / gestafyrirlesturinn í þessari umsóknarumferð er 1. nóvember 2020 – 31. október 2021. Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist skólanum, kennurunum og skólasamfélaginu. Stjórn SEF mun meta umsóknir og vel unnin umsókn er skilyrði fyrir styrkveitingu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica