Auglýst eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki

18.8.2022

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF) auglýsir eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki. Umsóknarfrestur er til 6. október 2022, kl. 15:00.

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara veitir styrki fyrir:

  1. Skólameistara framhaldsskóla, sem tilnefna einn til tvo kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 250.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur skólameistari sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi í skólanum að hámarki 80.000 krónur.
  2. Faggreinafélög, sem tilnefna einn til tvo stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 250.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur faggreinafélagið sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi fyrir félagið að hámarki 80.000 krónur.

Ferðatímabilið / gestafyrirlesturinn í þessari umsóknarumferð er 1. nóvember 2022 – 31. október 2023. Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist skólanum, kennurunum og skólasamfélaginu. Stjórn SEF mun meta umsóknir og vel unnin umsókn er skilyrði fyrir styrkveitingu.

Nánari upplýsingar gefur Skúli Leifsson, verkefnastjóri innlendra menntasjóða, í síma 515-5843 eða með tölvupósti á netfanginu sef(hja)rannis.is  









Þetta vefsvæði byggir á Eplica