Auglýst eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki

14.8.2025

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF) auglýsir eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki. Umsóknarfrestur er 7. október 2025, kl. 15:00.

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara veitir styrki fyrir:

  1. Skólameistara framhaldsskóla, sem tilnefna einn til tvo kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 300.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið.
  2. Faggreinafélög, sem tilnefna einn til tvo stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 300.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig geta faggreinafélög sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara að hámarki 100.000 krónur.

Tímabilið sem um ræðir í þessari umsóknarumferð er 1. nóvember 2025 – 31. október 2026.

Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist umsækjanda, þátttakendum og skólasamfélaginu.

Stjórn SEF mun meta umsóknir og vel unnin umsókn er skilyrði fyrir styrkveitingu.

 
Nánari upplýsingar um sjóðinn

Sótt er um rafrænt í umsóknakerfi Rannís

Nánari upplýsingar gefur Ingunn Helga Bjarnadóttir, sérfræðingur á mennta- og menningarsviði, með tölvupósti: namsorlof.framhaldsskola(hja)rannis.is eða í síma 515 5881.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica