Auglýst eftir umsóknum um námsorlof kennara, námsráðgjafa og stjórnenda framhaldsskóla

22.8.2016

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2017-2018. Umsóknir þurfa að berast Rannís eigi síðar en þriðjudaginn 27. september næstkomandi, kl. 17:00.

Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknakerfi Rannís.

Eru umsækjendur jafnframt hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins og algengar spurningar.

Nánari upplýsingar gefur Jón Svanur Jóhannsson, verkefnastjóri innlendra menntasjóða, í síma 515-5820 eða með tölvupósti í jon.svanur.johannsson(hja)rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica