Auglýst eftir umsóknum um námsorlof kennara, námsráðgjafa og stjórnenda framhaldsskóla
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2026-2027.
Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.
Umsóknir þurfa að berast Rannís eigi síðar en 7. október næstkomandi, kl. 15:00.
Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknakerfi Rannís.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins og algengar spurningar.
Nánari upplýsingar gefur Ingunn Helga Bjarnadóttir, sérfræðingur á mennta- og menningarsviði, með tölvupósti namsorlof.framhaldsskola(hja)rannis.is eða í síma 515 5881.