Auglýst eftir umsóknum um námsorlof kennara, námsráðgjafa og stjórnenda framhaldsskóla

21.8.2019

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2020-2021. Umsóknir þurfa að berast Rannís eigi síðar en miðvikudaginn 2. október næstkomandi, kl. 16:00.

Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknakerfi Rannís.

Eru umsækjendur jafnframt hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins og algengar spurningar.

Nánari upplýsingar gefur Skúli Leifsson, verkefnastjóri innlendra menntasjóða.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica