Auglýst eftir umsóknum um námsorlof kennara, námsráðgjafa og stjórnenda framhaldsskóla

20.8.2021

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2022-2023. Umsóknir þurfa að berast Rannís eigi síðar en föstudaginn 1. október 2021, kl. 15:00.

Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknakerfi Rannís.

Umsækjendur eru jafnframt hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins og algengar spurningar.

Nánari upplýsingar gefur Skúli Leifsson, verkefnastjóri innlendra menntasjóða, í síma 515-5843 eða með tölvupósti í skuli.leifsson(hja)rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica