Auglýst eftir umsóknum um styrki til íslensku­kennslu - viðbótar­úthlutun

26.10.2021

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem eru ekki hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Áformað er að verja allt að 150 m.kr. til íslenskukennslu útlendinga árið 2021-22 sem viðbót við fjármagn sem útdeilt er fyrir hvort árið um sig. Úthlutuninni er ætlað að svara aukinni eftirspurn og er miðuð að námskeiðum sem haldin verða síðari hluta árs 2021 og fyrri hluta árs 2022. Umsóknarfrestur er til 5. nóvember 2021, kl. 15:00.

Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í þjóðskrá, tækifæri til að öðlast nauðsynlega færni í íslensku til að geta orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi. Hælisleitendur eru þó undanþegnir kröfu um skráningu í Þjóðskrá á meðan málefni þeirra eru til skoðunar hjá stjórnvöldum.

Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Krafa er gerð um að námskeið sem hlýtur styrk skuli hafa skýra og sýnilega tengingu við Evrópska tungumálarammann. Fyrirtæki eða stofnanir, sem ekki eru viðurkenndir framhaldsfræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við viðurkenndan fræðsluaðila, sem annast kennsluna, fylgja umsókninni.

Upplýsingar um sjóðinn veitir Skúli Leifsson, verkefnastjóri á mennta- og menningarsviði i síma 515 5843 og á islenskukennsla.utlendinga(hja)rannis.is

Nánari upplýsingar á síðu sjóðsins









Þetta vefsvæði byggir á Eplica