Auglýst eftir umsóknum um styrki til íslenskukennslu

26.10.2021

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku fyrir árið 2022 sem eru ekki hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Umsóknarfrestur er til 7. desember 2021, kl. 15:00.

Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í þjóðskrá, tækifæri til að öðlast nauðsynlega færni í íslensku til að geta orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi. Hælisleitendur eru þó undanþegnir kröfu um skráningu í Þjóðskrá á meðan málefni þeirra eru til skoðunar hjá stjórnvöldum.

Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Krafa er gerð um að námskeið sem hlýtur styrk skuli hafa skýra og sýnilega tengingu við Evrópska tungumálarammann. Fyrirtæki eða stofnanir, sem ekki eru viðurkenndir fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við viðurkenndan fræðsluaðila, sem annast kennsluna, fylgja umsókninni.

Upplýsingar um sjóðinn veitir Skúli Leifsson, verkefnastjóri á mennta- og menningarsviði i síma 515 5843 og á islenskukennsla.utlendinga(hja)rannis.is

Nánari upplýsingar á síðu sjóðsins









Þetta vefsvæði byggir á Eplica