Auglýst eftir umsóknum úr Íþróttasjóði
Umsóknarfrestur er til 1. október 2016, kl. 16:00.
Fyrir hönd Mennta- og menningarmálaráðuneytisins auglýsir Rannís eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008 .
Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:
- Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
- Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
- Íþróttarannsókna
- Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís fyrir 1. október 2016 kl. 17:00.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson.