Auglýst er eftir umsóknum í Æskulýðssjóð

1.2.2018

Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 15. febrúar 2018 kl. 16:00.

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði til verkefna sem tengjast tilgangi sjóðsins. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Æskulýðssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki tvisvar sinnum á ári, 15. febrúar og 15. október.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknakerfi Rannís fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 15. febrúar 2018.

Nánari upplýsingar á síðu Æskulýðssjóðs.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica