Auglýst er eftir umsóknum í doktorsnemasjóð umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir styrkárið 2021

7.5.2021

Sjóðurinn styrkir rannsóknir á samspili landnýtingar og loftslags. Umsóknarfrestur er til 15. júní 2021, kl 15:00.

Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á samspili landnýtingar og loftslags. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn nemendur í doktorsnámi á sviði náttúruvísinda.

Sjóðurinn veitir styrki samkvæmt almennum áherslum umhverfisráðuneytis og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni einstaklinganna sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu.

Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér vel reglur sjóðsins fyrir styrkárið 2021 áður en hafist er handa við gerð umsóknar.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum mínar síður Rannís. Umsóknir og umsóknargögn skulu vera á ensku.

Nánari upplýsingar og aðgangur að rafrænu umsóknarkerfi Rannís á vefsíðu sjóðsins .









Þetta vefsvæði byggir á Eplica