Auglýst er eftir umsóknum í Hljóðritasjóð

16.8.2021

Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla íslenska hljóðritagerð í tónlist með fjárhagslegum stuðningi við útgáfu hljóðrita, samkvæmt reglum um Hljóðritasjóð.

Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist. Styrkir eru veittir til verkefna að hámarki til eins árs. 

Næsti umsóknarfrestur er til 15. september kl. 15:00.

Hafi umsækjandi þegið styrk úr Hljóðritasjóði þarf að liggja fyrir greinargerð umframkvæmd fyrra verkefnis til að ný umsókn af hans hálfu komi til greina það sama á við ef að verk er í vinnslu þá skal umsækjandi skila inn greinargerð um stöðu verksins. 

Framhaldsstyrkir eru ekki veittir til verkefna sem áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum. Útgáfa má ekki hafa átt sér stað áður en umsókn um styrk berst Hljóðritasjóði.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.

Nánari upplýsingar veita Óskar Eggert Óskarsson og Ragnhildur Zoëga: hljodritasjodur@rannis.is

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica