Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Loftslagssjóði

25.10.2022

Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Styrkir til nýsköpunarverkefna eru ætlaðir m.a. til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við aðlögun og innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun. Umsóknarfrestur er 6. desember 2022 kl. 15:00.

Styrktegund er ein að þessu sinni og eru styrkir veittir til eins árs.

Áhersla verður lögð á verkefni sem:

  • skila samdrætti í losun og stuðla að sjálfstæðu landsmarkmiði Íslands um að draga úr losun á beinni ábyrgð Íslands um 55% (miðað við árið 2005) fyrir 2030. Áhersla þessi er í samræmi við markmið ríkisstjórnar í stjórnarsáttmála.
  • hagnýta grunnþekkingu sem þegar er til staðar, hafa möguleika á að nýtast sem víðast í samfélaginu og beinast að aðilum sem hafa                                                                                          talsverða möguleika á að draga úr losun.

Verkefni sem ekki verða styrkt í þessari úthlutun:

  • kynningar- og fræðsluverkefni.

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður). Ekki er tekið við gögnum eftir að umsóknarfrestur rennur út.

Umsækjendur skulu kynna sér vel handbók sjóðsins fyrir styrkárið 2023 áður en umsókn er gerð.

Nánari upplýsingar á síðu Loftslagssjóðs

EN

Logo-LoftslagssjodsLoftslagssjóður heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra en Rannís hefur umsjón með sjóðnum.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica