Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Rannsóknasjóði Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar

20.3.2017

Umsóknarfrestur er 2. maí 2017 kl. 16:00. Markmið sjóðsins er að veita styrki til eflingar rannsókna á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita um þau efni.

Allir sem áhuga hafa á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði geta sótt um í sjóðinn.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís. Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.

Sjá nánar um sjóðinn









Þetta vefsvæði byggir á Eplica