Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Vinnustaðanámssjóði

9.4.2021

Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla. 

Umsóknarfrestur er til 23. nóvember 2021, kl. 15:00.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Umsóknargögn og frekari leiðbeiningar eru aðgengileg á vefsíðu sjóðsins.


Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á mínum síðum Rannís.

Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson, sími 515 5843. skuli.leifsson (hja) rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica