Auglýst er eftir umsóknum úr Barna­menningar­sjóði

7.2.2022

Hlutverk sjóðsins er að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.

  • Máluð mynd af blómum

Verkefni sem stuðla að lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka mið af inntaki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa sérstakt vægi.

Áhersla er lögð á samstarf tveggja aðila eða fleiri, svo sem menningarstofnana, skóla, listafólks og félagasamtaka og er hvatt til þess að samstarfsverkefni séu unnin í samstarfi ólíkra aðila, t.d. að stofnanir leiti samstarfs við skapandi fólk fremur en við aðrar stofnanir.

Ef umsækjandi hefur þegar hlotið styrk úr sjóðnum kemur ný umsókn ekki til álita nema að loka- eða áfangaskýrslu sé skilað fyrir umsóknarfrest.

Umsóknarfrestur rennur út 4. apríl 2022 kl. 15.00.

Sjóðurinn er átaksverkefni til fimm ára, stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins á hátíðarfundi Alþingis 18. júlí 2018.

Reglur sjóðsins og umsóknargögn er að finna á síðu Barnamenningarsjóðs. Umsóknum, áfanga- og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi sem hægt er að nálgast á mínum síðum Rannís

Barnamenningarsjodur_Islands_merki-landscape









Þetta vefsvæði byggir á Eplica