Bókasafnasjóður úthlutun 2023

15.6.2023

Umsóknarfrestur í Bókasafnasjóð rann út þann 15. mars síðastliðinn. Tuttugu milljónir voru til úthlutunar, sjóðnum bárust 30 umsóknir og sótt var um rúmar 73 milljónir. Menningarráðherra samþykkti tillögu Bókasafnaráðs og úthlutar styrkjum til 7 verkefna. 

Háskólasafn fær hæsta styrkinn eða 7 milljónir króna fyrir átaksverkefni við skráningu nafnmynda í Gegni og er þar um að ræða mikilvægt verkefni sem mun gagnast öllum bókasöfnum landsins. Menningarráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir, bauð styrkþegum til viðburðar í Safnahúsi 14. júní 2023.

Styrkþegar bókasafnasjóðs 2023*

Umsækjandi Verkefni Upphæð
Amtsbókasafnið á Akureyri Galopið bókasafn – aðgengi að safninu aukinn og íbúum veittur aðgangur að safni án þess að starfsmenn séu á staðnum. 3.000.000
Borgarbókasafn Reykjavíkur Ráðstefna: almenningsbókasafnið sem samfélagsrými Borgarbókasafnið ásamt Amtsbókasafni, Bókasafni Kópavogs, SFA og Nordic Libraries Together, efna til ráðstefnu um almenningsbókasafnið sem samfélagsrými. 3.100.000
Borgarbókasafn Reykjavíkur

Svakalega sögusmiðjan - raddir barna

Í svakalegu sögusmiðjunni er lögð áhersla á að sýna börnum bókasafnið sem stað sköpunar og miðlunar með því að vinna saman að gerð tímarits.

3.000.000
Bókasafn Árborgar Barnabókahetjur heimsins. Verkefnið snýst um að leita uppi barnabókahetjur heimsins og kynna þær fyrir íbúum Árborgar. Verkefnið er samstarf Bókasafns Árborgar, fjölmenningarteymis sveitarfélagsins, leikskóla og frístundamiðstöðva. 1.400.000
Bókasafn Hafnarfjarðar

Hittingarnir

Mánaðarlegir hittingar fyrir karlmenn þar sem hægt er að fræðast, læra og kynnast á eigin forsendum. Þar gefst tækifæri til að prófa sig áfram í nýju handverki, þróa með sér nýja færni, öðlast nýja þekkingu og mynda vinatengsl.

500.000
Landsbókasafn -Háskólabókasafn

Alþjóðleg vika opins aðgangs 2023.

Samstarfshópur háskólabókasafna um opin vísindi/opinn aðgang stendur að alþjóðlegri viku opins aðgangs dagana 23. – 29. október 2023. Samstarfshópur háskólabókasafna vill miðla fræðslu til vísindasamfélagsins.

2.000.000
Landsbókasafn -Háskólabókasafn

Átaksverkefni við skráningu nafnmynda í Gegni.

Mikilvægi nafnmyndaskráningar hefur aukist í nýju bókasafnskerfi og nýir möguleikar hafa opnast. Aðgengilegar og áreiðanlegar upplýsingar um íslensk heiti, einkum mannanöfn, skipulagsheildir, viðburði, landfræðiheiti og íslensk hugverk, sem við og aðrar þjóðir getum nýtt. Mannanöfn og efnisorð eru í góðu lagi, en gera þarf átak í öðrum þáttum. Góð nafnmyndastjórnun eykur samræmi og gæði lýsigagna, flýtir fyrir skráningarvinnu og bætir leitarheimtur.

7.000.000
SAMTALS   20.000.000

*Birt með fyrirvara um innsláttarvillur









Þetta vefsvæði byggir á Eplica