Bókasafnasjóður úthlutun 2025
Úthlutunarathöfn fór fram í Höfuðstöðinni við Rafstöðvarveg 25. maí 2025 viðstaddir voru menningarráðherra, stjórn og verkefnisstjórar.
Sjóðnum bárust samtals 25 umsóknir og sótt var um 73,6 milljónir sem er tvöföldun frá árinu 2024. Nítján milljónir voru til úthlutunar og Logi Einarsson menningarráðherra samþykkti tillögu stjórnar sjóðsins um að úthluta 19 milljónum til 11 verkefna í ár.
Hæsti styrkur rennur til Borgarbókasafns, eða 4,5 milljónir króna, fyrir Læsi á stöðu og baráttu kvenna. Næsthæsta styrkinn fær bókasafn Norræna hússins fyrir verkefnið Lína, lýðræðið og lestrarævintýrið.
Styrkhafar bókasafnasjóðs 2025
*Birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
Styrkþegi | Styrkur | Verkefni | Lýsing á verkefni |
Borgarbókasafn Reykjavíkur | 4.500.000 kr | Læsi á stöðu og baráttu kvenna | Almenningsbókasöfn um allt land efla læsi á stöðu og baráttu kvenna á Kvennaári 2025 með viðburðum og sýningum sem skapa samfélag í kringum lestur. Læsi er eflt með sameiginlegri upplifun í kringum lestur sem eykur skilning á ólíkum hlutverkum kvenna og auðgar lestrarupplifunina í samfélagi við aðra. Lögð verður áhersla á skrásetningu frá hverjum viðburði og verður efninu safnað saman á borgarbokasafn.is. |
Norræna húsið | 3.500.000 kr | Lína, lýðræðið og lestrarævintýrið | Sýning á barnabókasafni Norræna hússins unnin í samstarfi við börn, sem dregur fram grunnhugtök lýðræðis í gegnum lestur, myndir og leiki í tengslum við bækurnar um Línu Langsokk. Skapandi sýning þar sem tekið er tillit til hugmynda og skoðanir barna, sem ferðast um landið. |
Kópavogsbær | 3.000.000 kr | Kynningarátak og efling almenningsbókasafna | Verkefnið snýr að því að auka aðgengi og áhuga almennings á bókasöfnum, bæði í mennta- og menningarlegum tilgangi, með markvissu markaðs- og kynningarátaki. Með kynningarátaki geta bókasöfnin skipað sér sess sem mikilvægur þáttur í daglegu lífi fólks í nærumhverfinu, þar sem öll eru velkomin burtséð frá kyni, þjóðerni, stétt eða stöðu. |
Héraðsbókasafn Rangárvallasýslu | 2.000.000 kr | Landsfundur Upplýsingar 2025 | Landsfundur Upplýsingar er haldinn að hausti annað hvert ár. Um er að ræða tveggja daga ráðstefnu þar sem fjallað um bókasafna- og upplýsingamál. Yfirskrift fundarins í ár er Heimsmarkmiðin: Hlutverk bókasafna og upplýsingastofnanna. |
Kópavogsbær | 1.200.000 kr | Bókasafnið gegn upplýsingaóreiðu | Bókasafnið er staður þar sem upplýsingar eru geymdar" samkvæmt skilgreiningu Wikipedia. Í heimi þar sem upplýsingaóreiða er vaxandi vandamál er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að miðla réttum upplýsingum og styðja fólk í því að feta sig í gegnum frumskóg upplýsingaóreiðunnar. Við ætlum að fara af stað með átaks- og þróunarverkefni sem snýr að því að kenna og uppfræða gesti okkar um hvernig við getum athafnað okkur í gegnum upplýsingaóreiðu samtímans og fundið réttar upplýsingar. |
Bókasafn Árborgar | 1.000.000 kr | Einu sinni á ágústkvöldi - viðburðaröð | Ágústmánuður 2025 verður tileinkaður ástarsögum og ljúflestrarbókum. Íslenskum höfundum verður boðið í heimsókn og einnig verða upplestrarkvöld þar sem verður lesið úr íslenskum ástarsögum. Efnt verður til leitar að ástarbréfum Sunnlendinga og þau sýnd auk þess sem boðið verður upp á kennslu í ritun ástarbréfa. Sérstakir viðburðir verða fyrir íbúa af erlendum uppruna. |
Borgarbókasafn Reykjavíkur | 1.000.000 kr | Lestrarhátíð á Borgarbókasafninu | Lestrarhátíðin er nýtt verkefni á Borgarbókasafninu sem miðar að því að efla lestrarmenningu á Íslandi með því að skapa fjölbreytta og skapandi dagskrá fyrir lesendur á öllum aldri. Hátíðin verður tvískipt; með áherslu á fullorðna lesendur að vori, tengt við Alþjóðlega bókmenntahátíð í Reykjavík, og síðan börn og ungmenni að hausti, í tengslum við alþjóðlegu barnabókahátíðina Mýrina. |
Borgarbókasafn Reykjavíkur | 900.000 kr | Bókaklúbbur í poka | Bókaklúbbur í poka er verkefni sem miðar að því að efla samlestur með því að bjóða upp á bókapoka sem innihalda nokkur eintök af sömu bókinni, umræðukveikjur, spurningar og aukaefni. Hugmyndin er að gera bókmenntaumræður aðgengilegri og styðja við starfsemi bókaklúbba, sem og hvetja til notkunar á bókmenntum til að fjalla um samfélagsleg málefni. Pokarnir verða aðgengilegir í almenningsbókasöfnum og á vefsíðu safnsins. |
Skagafjörður | 900.000 kr | Ljúfar lestrarstundir | Lestrarstundir fyrir yngstu gesti safnsins, börn á leikskólaaldri, fyrstu bekki grunnskóla og aðstandendur þeirra. Lögð verður áhersla á vandað lesefni, virka hlustun, skilning á lesefninu og umræður og úrvinnslu. Samhliða lestrinum verður boðið upp á verkefni út frá lesefninu þar sem börnin vinna með áþreifanlega hluti eins og leikbrúður og föndur. |
Amtsbókasafnið á Akureyri | 650.000 kr | Sumarfjör 2025 | Amtsbókasafnið stendur fyrir tveimur skemmtilegum smiðjum í sumarfríinu fyrir börn á aldrinum 7-12 ára. Annars vegar bjóðum við upp á Vísindasmiðju, þar sem börnin fræðast um vísindi og fá að gera tilraunir. Hins vegar er boðið upp á tvö ókeypis forritunar námskeið, Minecraft og lestur og Scratch Tölvuleikjagerð. |
Borgarbókasafn Reykjavíkur | 350.000 kr | Við varðeldinn. Sögustundir undir berum himni | Við varðeldinn er röð stögustunda undir berum himni við Borgarbókasafnið í Gerðubergi ætluð ungum ungum lesendum frá 5 - 10 ára. Leitast verður við að skapa eftirminnilega söguupplifun í takt við veður og vinda. Börnin taka virkan þátt í sögustundunum með því að hreyfa sig og fara í stuttar göngur í umhverfinu. Sögurnar tengjast allar náttúrunni á einn eða annan hátt og hvetja börnin til að taka þátt í umhverfinu. |