COST auglýsir 60 ný verkefni
Tilgangur COST verkefna er að byggja upp alþjóðleg samstarfsnet rannsókna og nýsköpunar. COST verkefni hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda í styrkumsóknum í stærri verkefni í rannsóknaáætlunum ESB.
Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og niðurstöðum í gegnum fundi og ráðstefnur, vinnustofur og heimsóknir. COST greiðir fyrir kostnað þátttakenda vegna ferða og ráðstefnuhalds í þessum verkefnum en greiðir ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf.
Þátttaka í COST verkefnum er opin öllu vísindafólki sem hefur sérþekkingu á því sviði sem verkefnið fjallar um, hvort sem um er að ræða doktorsnema eða reyndari vísindamenn úr bæði háskólum og einkageira.
- Alls getur Ísland átt tvo fulltrúa í stjórnarnefnd fyrir hvert verkefni. Ósk eftir tilnefningu skal senda í formi umsóknar til Rannís.
Umsókn um aðkomu að COST verkefni
- Einnig geta áhugasamir geta skráð sig í vinnuhópa (working group) og er viðkomandi þá ekki formlegur fulltrúi Íslands. Skráning í vinnuhóp fer ekki fram í gegnum Rannís.
Hvert COST verkefni stendur yfir í fjögur ár og er hægt að gerast þátttakandi í COST verkefni hvenær sem er á þeim tíma.