COST auglýsir 70 ný verkefni

22.5.2025

Tilgangur COST verkefna er að byggja upp alþjóðleg samstarfsnet rannsókna og nýsköpunar. COST verkefni hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda í styrkumsóknum í stærri verkefni í rannsóknaáætlunum ESB.

Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og niðurstöðum í gegnum fundi og ráðstefnur, vinnustofur og heimsóknir. COST greiðir fyrir kostnað þátttakenda vegna ferða og ráðstefnuhalds í þessum verkefnum en greiðir ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf.

Samþykkt COST verkefni


Þátttaka í COST verkefnum er opin öllu vísindafólki sem hefur sérþekkingu á því sviði sem verkefnið fjallar um, hvort sem um er að ræða doktorsnema eða reyndari vísindamenn úr bæði háskólum og einkageira.

Frétt á vef COST

  • Einnig geta áhugasöm geta skráð sig í vinnuhópa (working group) og er viðkomandi þá ekki formlegur fulltrúi Íslands. Skráning í vinnuhóp fer ekki fram í gegnum Rannís.

Hvert COST verkefni stendur yfir í fjögur ár og er hægt að gerast þátttakandi í COST verkefni hvenær sem er á þeim tíma. 

Minnt er á að lokafrestur til að skila inn umsókn um nýtt COST verkefni er 21.október næstkomandi:

Nánari upplýsingar

EN









Þetta vefsvæði byggir á Eplica