Dr. Heiða María Sigurðardóttir, prófessor við Háskóla Íslands, og Dr. Þórhildur Halldórsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, hljóta Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs

18.4.2024

Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs fyrir árin 2023 og 2024 voru afhent við hátíðlega athöfn á Rannsóknaþingi Rannís sem fór fram á Hilton Reykjavík Nordica í dag.  

  • _90A3731

Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs voru veitt tveimur framúrskarandi vísindakonum á rannsóknaþingi í dag. Dr. Heiða María Sigurðardóttir, prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands, hlaut verðlaunin fyrir árið 2023 og Þórhildur Halldórsdóttir, lektor við Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, hlaut verðlaunin fyrir árið 2024. Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis afhenti verðlaunin fyrir hönd ráðherra.

Mynd: f.v. Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis,  Þórhildur Halldórsdóttir og Heiða María Sigurðardóttir.




Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs 2023 – Heiða María Sigurðardóttir

Dr. Heiða María er sérfræðingur í taugavísindum, með sérstaka áherslu á hugræn taugavísindi. Heiða útskrifaðist úr grunnnámi í sálfræði við Háskóla Íslands árið 2005. Hún stundaði doktorsnám við Taugavísindadeild Brown-háskóla í Bandaríkjunum og varði doktorsritgerð sína árið 2013. Doktorsritgerð hennar fjallaði um hvernig heilinn vinnur úr upplýsingum um það sem við sjáum til þess að stýra augum okkar og athygli, og áhrif reynslunnar á hugar- og heilastarf.

Að loknu doktorsnámi lá leið Heiðu aftur til Íslands þar sem hún stundaði rannsóknir og sinnti kennslu við Háskóla Íslands. Hún tók við stöðu lektors við Sálfræðideild, á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, árið 2016 og árið 2023 hlaut hún þar framgang í stöðu prófessors.

Heiða hefur á undanförnum árum verið afkastamikill rannsakandi. Hún er meðhöfundur á fleiri tugum vísindagreina sem safnað hafa fleiri hundruðum tilvitnana og leitt fjölmörg rannsóknaverkefni sem meðal annars hafa hlotið styrki úr Rannsóknasjóði. Rannsóknastarf Heiðu einkennist af frumleika og áræðni, meðal annars í nýjungakenndum hugmyndum um tilurð lesblindu þar sem hún hefur sett fram hugmyndir og prófað í tilraunum, kenningu um frávik í starfsemi taugafræðilegra þátta við úrvinnslu skynáreita sem leikið geta hlutverk hjá sumum sem takast á við þann vanda.

Heiða er mikils metinn kennari og hefur reynst góður stjórnandi í þeim verkefnum sem hún hefur tekið að sér bæði fyrir deild og svið. Hún hefur lagt mikinn metnað í þróun kennsluhátta og að leiðbeina ungu vísindafólki í rannsóknaverkefnum sínum auk þess sem hún hefur mjög gott lag á að útskýra viðfangsefni sín svo bæði leiknir og lærðir skilji, og verið ötul við að miðla þekkingu sinni til almennings. Sú áræðni hefur meðal annars skilað Heiðu inngöngu í Kennsluakademíu opinberu háskólanna árið 2023.

_90A3709-Enhanced-NRMynd: f.v. Þórhildur Halldórsdóttir, handhafi hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs 2024 og Heiða María Sigurðardóttir, handhafi Hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs 2023

Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs 2024 – Þórhildur Halldórsdóttir

Dr. Þórhildur er sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með sérstaka áherslu á áhættu og verndarþætti sem móta líðan hjá börnum og unglingum.

Þórhildur útskrifaðist, úr grunnnámi í sálfræði við Háskóla Íslands árið 2008. Hún lauk meistaranámi í klínískri barnasálfræði árið 2011 og doktorsnámi árið 2014, bæði við Virginia Tech í Bandaríkjunum. Doktorsritgerð hennar fjallaði um samslátt kvíðaraskana og athyglisbrest með ofvirkni og hvernig það hefur áhrif á meðferðarárangur.

Að loknu doktorsnámi fluttist Þórhildur til Þýskalands þar sem hún starfaði um fjögra ára skeið sem nýdoktor hjá Max Planck stofnuninni fyrir geðlækningar. Eftir að Þórhildur fluttist aftur til Íslands, starfaði hún um tíma hjá Unni Valdimarsdóttur í Miðstöð Lýðheilsuvísinda.
Þórhildur var ráðin í stöðu lektors hjá Háskólanum í Reykjavík árið 2019 og hefur frá árinu 2021 leitt nýtt rannsóknasetur um samspil umhverfis og erfða, innan Háskólans í Reykjavík.

Þórhildur hefur skapað sér sérstöðu með því að tvinna saman ólík fræðasvið, sálfræði, erfðafræði og faraldsfræði, til að rannsaka áhættu- og verndarþætti sem móta líðan hjá börnum og unglingum. Hún hefur skarað framúr í rannsóknum sínum og verið meðhöfundur á tæplega 40 greinum sem hafa safnað tæplega tvö þúsund tilvísunum, auk þess að leiða fjölmörg rannsóknaverkefni sem hlotið hafa styrk úr bæði innlendum og erlendum rannsóknasjóðum.

Þórhildur er einnig ötul á sviði vísindamiðlunar og hefur reynsla hennar og þekking skipt sköpun í miðlun vísindanna til almennings í íslensku samfélagi. Í því samhengi má nefna umfjöllun í fjölmiðlum afleiðingar Covid-19 heimsfaraldurinn og samkomutakmarkana á líðan ungmenna. Sú umfjöllun byggði meðal annars á rannsóknum Þórhildar auk þess hún skrifaði pistla um leiðir til að vernda ungmenni gegn vanlíðan á tímum óvissu.

Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs eru veitt vísindafólki sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1987, en markmiðið með þeim er að hvetja vísindafólk til dáða og vekja athygli almennings á gildi rannsókna og starfi vísindafólks.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica