Enterprise Europe Network flyst til Rannís

7.1.2021

Frá og með 1. janúar 2021 flyst umsýsla með Enterprise Europe Network á Íslandi til Rannís frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ). 

Hlutverk Enterprise Europe Network er að bæta og styðja við samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja með því að stuðla að vexti þeirra, og aðgengi að mörkuðum, auk þess að styðja og hvetja þau til þátttöku í alþjóðlegu samstarfi, þar á meðal áætlunum á vegum ESB sem beinast að litlum og meðalstórum fyrirtækjum (SME), s.s. Horizon Europe.

Tveir af þeim sérfræðingum sem hafa stýrt starfi Enterprise Europe Network hófu störf hjá Rannís þann 1. janúar sl., Katrín Jónsdóttir og Mjöll Waldorff. Þjónusta og sérþekking tengd Enterprise Europe Network fellur vel að þeim stuðningi við fyrirtæki og samstarfi háskóla og rannsóknastofnana sem þegar er til staðar hjá Rannís og mun flutningurinn efla og styrkja þjónustu og ráðgjöf Rannís til frumkvöðla og fyrirtækja.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica