Tækifæri á sviði sjálfboðastarfs ungs fólks

18.9.2019

Á þessu ári varð Ísland formlega aðili að nýrri áætlun á sviði sjálfboðastarfs ungs fólks, European Solidarity Corps. Vakin er athygli á að næsti umsóknarfrestur er til 1. október nk.

European Solidarity Corps áætlunin er ætluð fyrir ungt fólk sem á lögheimili á Íslandi og er á aldrinum 18 – 30 ára.

Samtök og sveitarfélög geta sótt um að taka þátt í áætluninni og fá styrk til að taka á móti og/eða senda ungt fólk til þess að sinna samfélagsverkefnum í öðrum Evrópulöndum.

Við hjá Landskrifstofu Erasmus+ leitum að áhugasömum samtökum eða sveitarfélögum til að taka þátt í þessari áætlun með því að fá til sín sjálfboðaliða sem geta auðgað og eflt nærsamfélagið og haft áhrif á íbúa þess á jákvæðan hátt.

Einnig geta hópar ungs fólks sótt um styrk til þess að vinna að áhugaverðum verkefnum sem þau langar að koma í framkvæmd og eru til þess að bæta samfélagið.

Dæmi um tegundir og áherslusvið verkefna eru:

  • Án aðgreiningar
  • Móttaka og aðlögun flótta- og farandfólks
  • Borgaraleg og lýðræðisleg þátttaka
  • Forvarnir tengdar náttúruhamförum og uppbyggingu
  • Náttúruvernd
  • Heilsa og velferð
  • Nám og þjálfun
  • Atvinnuþátttaka og frumkvöðlastarf
  • Sköpun og menning
  • Íþróttir

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu áætlunarinnar og í handbók fyrir umsækjendur. Jafnframt veitir starfsfólk Landskrifstofu Erasmus+ upplýsingar.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica