Evrópskt æskulýðssamstarf

14.6.2022

Viltu stuðla að þátttöku ungs fólks í alþjóðlegu samstarfi? Rannís óskar eftir sérfræðingi í fullt starf á mennta- og menningarsvið, til að verða hluti af æskulýðsteymi Landskrifstofu Erasmus+ og European Solidarity Corps. 

Starfið felur í sér að kynna þau tækifæri sem bjóðast í evrópsku samstarfi fyrir þeim sem starfa með ungu fólki í sjálfboðastörfum og samfélagsverkefnum og hafa umsjón með umsóknum og verkefnum sem styrkt eru af samstarfsáætlunum Evrópusambandsins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á íslensku æskulýðsstarfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta og færni í að tjá sig í ræðu og riti
  • Mjög góð færni í ensku, töluðu og rituðu máli
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Lifandi framkoma og leiðtogafærni
  • Framúrskarandi samstarfshæfni og samskiptafærni
  • Reynsla af starfi með ungu fólki er kostur
  • Reynsla af verkefnastjórnun og kynningarstarfi er kostur
  • Reynsla af þátttöku í alþjóðlegu samstarfi er kostur
  • Færni í notkun algengra tölvuforrita og góð almenn tölvukunnátta
  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu

Upplýsingar um starfið veitir Aðalheiður Jónsdóttir, sviðstjóri mennta- og menningarsviðs í síma 515 5806 eða í tölvupósti:  í netfangi.

Umsóknarfrestur var til og með 24. júní 2022. Umsóknarferli er í gangi.


Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini.

Umsækjendum er bent á að kynna sér starfsemi Rannís og sérstaklega Erasmus+ og European Solidarity Corps á heimasíðu Landskrifstofu hjá Rannís.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Við ráðningu í starfið verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís og fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt viðeigandi kjarasamningi við fjármálaráðuneytið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica