Tækifæri: Listin og vísindin sameinast við endurheimt hafs- og vatnasvæða í Evrópu.

3.6.2025

TIDAL ArtS býður listamönnum og listahópum að sækja um styrk, upp á 15.000 evrur, til að skapa samfélagsmiðað listaverk sem tengir fólk við vatnaumhverfi sitt og vekur athygli á umhverfisáskorunum.

Verkefnið er fjármagnað af Evrópusambandinu í gegnum áætlun ESB  um endurheimt hafs- og vatnasvæða fyrir árið 2030 (Mission to Restore Our Ocean and Waters).

Markmið TIDAL ArtS er að skapa hvetjandi almenningslist með því að efla samstarf milli listafólks, borgara og vísindafólks. Og leitast við að virkja samfélög og auka vitund til að stuðla að verndun og endurheimt hafsins og innlendra vatna. 

Verkefnið hefur skilgreint fjögur hafs- og vatnasvæði innan Evrópu en alls verða 20 styrkir að upphæð 15.000 evrur veittir.

Svæðin eru:

  • Atlantshafs - Norðurslóða svæðið (Atlantic-Arctic)
  • Eystrasalts- Norðursjávar svæðið (Baltic-North Sea)
  • Miðjarðarhafssvæðið (Mediterranean Sea)
  • Danube ár - Svartahafs svæðið (Danube River-Black Sea)

Íslenskt listafólk og listahópar eiga kost á því að sækja um og hljóta styrk þar sem Ísland tilheyrir Atlantshafs - Norðurslóða (Atlantic-Arctic) svæðinu.

Um verkefnið og umsókn:

  • Verkefnið á að vera opið, þátttökumiðað og unnið í samvinnu við vísindamenn, fræðimenn og samfélagið.
  • Umsóknin skal innihalda verkefnatillögu, ferilskrá og listamöppu.
  • Umsækjendur þurfa að hafa virkan samfélagsmiðlareikning til að skrásetja ferlið.

Umsóknarfrestur er til 14. júní 2025 kl. 23:59 CEST (21:59 að íslenskum tíma)

Nánari upplýsingar um tækifærið og hlekkur á umsókn er á síðu TIDAL ArtS.

Heimasíða TIDAL ArtS








Þetta vefsvæði byggir á Eplica