Hugbúnaðarsérfræðingur

27.7.2022

Rannís leitar að flinkum forritara til að bætast í hugbúnaðarhópinn. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt teymi sem vantar hressan „fullstack forritara” með mikinn áhuga á vefforritun og greiningarvinnu. Starfið felst í hönnun, hugbúnaðargerð og umsjón með kerfum Rannís.

Rannís er skemmtilegur vinnustaður með mikið félagslíf, frábæran starfsanda og nóg af kaffi! Starfið felst í hönnun, hugbúnaðargerð og umsjón með umsókna-, umsýslu- og upplýsingakerfum Rannís. Bæði er verið að viðhalda og uppfæra núverandi kerfi og einnig þróa og smíða nýjar lausnir og viðbætur til að einfalda og straumlínulaga ferli.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði hugbúnaðarfræða eða annað sambærilegt nám
  • Þekking og reynsla á PHP, SQL, JavaScript og Git er æskileg
  • Reynsla af hugbúnaðargerð, Agile og Scrum er æskileg
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni
  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu

Upplýsingar um starfið veitir Berglind Fanndal Káradóttir, sviðsstjóri greiningar- og hugbúnaðarsviðs, í síma 515 5816 eða í tölvupósti. Senda póst.

Umsóknarfrestur var 22. ágúst 2022. Verið er að fara yfir umsóknir. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini. Umsækjendum er bent á að kynna sér starfsemi Rannís á vefsíðu stofnunarinnar.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Við ráðningu í starfið verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun ákvarðast af viðeigandi kjarasamningi við fjármálaráðuneytið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.


Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica