Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs

13.9.2019

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað framúr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem styrki stoðir mannlífs á Íslandi.

Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2019. Verðlaunin eru þrjár milljónir króna. 

Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu ásamt rökstuðningi þess sem tilnefnir. Hvatningarverðlaunin verða afhent á Rannsóknaþingi í haust. 

Við mat á tilnefningum er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og alþjóðasamstarfs, svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags á vinnustað og miðlun þekkingar til íslensks samfélags. 

Dómnefnd Hvatningarverðlaunanna er skipuð fyrri handhöfum verðlaunanna.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 11. október 2019.

Tilnefningum ásamt rökstuðningi og ítarlegum upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís

FYRRI HANDHAFAR HVATNINGARVERÐLAUNANNA









Þetta vefsvæði byggir á Eplica