Innviðasjóður - umsóknarfrestur er til 2. maí

21.3.2016

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði, en hlutverk sjóðsins er að byggja upp rannsóknainnviði á Íslandi.

Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.

Við úthlutun úr Innviðasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs og eftirtalin atriði lögð til grundvallar:

  • Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
  • Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir.
  • Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun á viðkomandi fræðasviði.
  • Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
  • Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig aðgengi verður háttað.
  • Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar.

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel reglur sjóðsins áður en umsókn er gerð.

Steinunn S. Jakobsdóttir veitir upplýsingar um Innviðasjóð.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica