Jules Verne, vísinda- og tæknisamstarf Íslands og Frakklands

3.4.2019

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til vísinda- og tæknisamstarfs milli íslenskra og franskra aðila á grundvelli Jules Verne samstarfssamningsins. Mennta- og menningarmálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís sér um framkvæmd verkefnisins

Tilgangurinn með þessu tvíhliða samstarfi milli Íslands og Frakklands er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndunum og auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu.

Umsóknarfrestur er til 30. september 2019. Svör við umsóknum og niðurstöður vegna styrkveitingar verða kynntar eigi síðar en í lok desember 2019

Veittir eru styrkir að upphæð 650.000 kr. sem eru ætlaðir til að greiða ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn til gagnkvæmra heimsókna á árunum 2020-2021.

Vísindamenn sem starfa við öll svið grunnrannsókna og hagnýtra rannsókna geta sótt um. Virk þátttaka ungra vísindamanna, þ.e. doktorsnema eða þeirra sem nýlega hafa lokið doktorsnámi er eitt af þeim skilyrðum sem verkefnin þurfa að uppfylla til að hljóta styrk. Einnig munu verkefni sem hafa það að markmiðið að víkka út samstarfið á evrópskum vettvangi njóta forgangs.

Stofnanir sem eiga í samstarfi er gert að leggja inn hver fyrir sig umsókn til þeirra aðila sem hafa yfirumsjón í hvoru landi fyrir sig. Aðeins koma til greina umsóknir sem eru lagðar fram af báðum aðilum.

Hér má finna nánariupplýsingar og umsóknareyðublöð

Umsjón með Jules Verne hjá Rannís hefur Elísabet M. Andrésdóttir, netfang: elisabet.andresdottir@rannis.is, sími 515 5809









Þetta vefsvæði byggir á Eplica