Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð, skattahvata og Enterprise Europe Network

31.1.2024

Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi 7. febrúar 2024 kl. 8.30-10:00 í fundarsalnum Hyl, 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

  • ISS_24519_00123

Á fundinum verða kynningar á Tækniþróunarsjóði, skattahvötum vegna rannsókna og þróunar og Enterprise Europe Network (EEN). 

Dagskrá

  • Tækniþróunarsjóður - kynning á styrkjaflokkum og ferlinu
  • Skattfrádráttur vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar
  • Enterprise Europe Network - kynning á stuðningi við metnaðarfull fyrirtæki í nýsköpun og alþjóðlegum vexti
  • Kynningar frá félagsmönnum SI og SSP sem hafa fengið styrk
  • Umræður og spurningar

Fundarstjóri er Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI.

Boðið verður upp á léttan morgunverð.

Skráning á fundinn









Þetta vefsvæði byggir á Eplica