Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð
Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð fimmtudaginn 4. september kl. 9:00-10:30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalnum Hyl á 1. hæð. Fundurinn verður einnig í streymi.
Sérfræðingar frá Rannís munu meðal annars kynna opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna í Tækniþróunarsjóði auk tækifæra á erlendum mörkuðum.
Veitingar í boði.
Fundarstjóri er Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI.
Dagskrá
- Tækniþróunarsjóður – kynning á styrkjaflokkum og kerfinu - Svandís Unnur Sigurðardóttir, Rannís
- Skattfrádráttur vegna rannsókna- og þróunarverkefna - Davíð Þór Lúðvíksson, Rannís
Þjónusta EEN og Eureka Innowwide – Mjöll Waldorff hjá Rannís
- Kynning frá fyrirtæki sem hefur fengið styrk – Safa Jemai, framkvæmdastjóri Vikonnekt