Listamannalaun 2026
Uppfærð reglugerð, áherslur stjórnar, matskvarði og ákvörðunartextar
Fyrirkomulag listamannalauna er í stöðugu endurmati. Markmiðið
er að þjóna hagsmunum sjálfstætt starfandi listafólks eins vel og hægt er með
þeim mánuðum sem eru til ráðstöfunar. Virkt samtal er á milli
menningarráðuneytis, stjórnar listamannalauna og fagfélaga listafólks.
Til skoðunar og umræðu er að flýta úthlutunarferli listamannalauna á
komandi árum á þann hátt að umsóknarfrestur færðist fram á vor og úthlutun
tilkynnt um mitt ár. Listafólk vissi þá með hálfs árs fyrirvara hvort
starfslaun fáist á komandi ári. Afstaða fagfélaga listafólks hefur hér
afgerandi áhrif.
Í úthlutun listamannalauna 2025 bættust við tveir nýir sjóðir; launasjóður kvikmyndahöfunda og Vegsemd, sjóður fyrir starfandi listamenn 67 ára og eldri, sem hafa varið starfsævi sinni til listsköpunar og skarað fram úr á sínu sviði. Úthlutaðir mánuðir allra sjóða voru 1.720 (143 árslaun).
Í úthlutun listamannalauna 2026 fjölgar mánuðum til úthlutunar hjá einstökum fagsjóðum
samkvæmt breytingum á lögum
um listamannalaun sem tóku gildi 13. júlí 2024. Sjá ákvæði VII til bráðabirgða.
Til úthlutunar úr öllum sjóðum árið 2026 verða 1.970 mánuðir (164 árslaun).
Vegna listamannalauna 2026 er áhugasömum bent á að kynna sér:
- Uppfærða reglugerðlistamannalauna í stjórnartíðindum.
- Uppfærðar áherslurstjórnar listamannalauna.
- Uppfærðan matskvarðaumsókna um listamannalaun.
- Staðlaða ákvörðunartexta sem verða í svarbréfum umsækjenda.
- Uppfært leiðbeiningarmyndband um gerð umsókna.
Auglýst verður eftir umsóknum um listamannalauna 2026 í byrjun ágúst. Umsóknarfrestur verður 1. október kl 15:00. Sjálfstætt starfandi listafólk er hvatt til að stofna umsókn tímanlega og forðast að skila umsókn á síðasta degi. Nánari upplýsingar á vef listamannalauna.