Menntaáætlun Nordplus 2016: Auglýst eftir styrkumsóknum til menntasamvinnu á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum

7.12.2015

Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar, býður kennurum og öðrum sem starfa við menntamál að sækja um styrki í áætlunina. Heildarupphæð styrkja til úthlutunar er um 9 milljónir evra (tæplega 1,4 milljarður íslenskra króna). Umsóknarfrestur er 1. mars 2016.

Umsóknir eru opnar öllum þeim sem vinna að kennslu eða menntamálum og styrkir eru veittir til ýmiss konar námsheimsókna, samstarfsverkefna og samstarfsneta. Farið er fram á samstarf á milli menntastofnana og/eða annarra þátttakenda í Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð eða Álandseyjum.

Opið er fyrir umsóknir í allar fimm undiráætlanir Nordplus:

Nordplus Junior: leik-, grunn- og framhaldsskólar

Nordplus Voksen: fullorðinsfræðslustofnanir

Nordplus háskólastigsins: menntastofnanir á háskólastigi

Nordplus Horizontal: þverfaglegt samstarf og samstarf á milli menntastiga

Nordplus tungumálaáætlunin: aukinn málskilningur á norðurlandatungumálum (einkum dönsku, norsku og sænsku)

Nánari upplýsingar má nálgast á www.nordplus.is

Nánari upplýsingar um umsóknarfrestinn á pdf skjali (555 KB)









Þetta vefsvæði byggir á Eplica