Afturköllun á úthlutun í Hljóðritasjóð

31.10.2017

Rannís harmar þau mistök sem áttu sér stað við útsendingu á svörum til umsækjenda í Hljóðritasjóð þann 30. október sl.

Ástæðu má rekja til mistaka við úrvinnslu gagna hjá Rannís sem leiðir til þess að öll úthlutunin sem umsækjendum var tilkynnt um í gær er afturkölluð.

Við biðjum umsækjendur innilegrar afsökunar á þeim óþægindum sem þessi útsending olli. Farið verður yfir verkferla til að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica