Innviðasjóður - umsóknarfrestur til 1. apríl

2.3.2015

Rannís lýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði.

Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknainnviði á Íslandi. Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.

Við úthlutun úr Innviðasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs og eftirtalin atriði lögð til grundvallar:

  • Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda
  • Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir
  • Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun á viðkomandi fræðasviði
  • Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti
  • Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig aðgengi verður háttað
  • Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar

Umsóknir eru rafrænar og er aðgengi að umsóknarkerfi Rannís í gegnum síðu sjóðsins. Umsækjendur skulu kynna sér allar upplýsingar og reglur sjóðsins áður en umsókn er gerð.

Eiríkur Stephensen

sérfræðingur hjá Rannís veitir upplýsingar um Innviðasjóð.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica