Nýr sjóður til styrktar mennta­rannsóknum

1.7.2021

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur sett á laggirnar nýjan sjóð, Menntarannsóknasjóð, sem styrkja mun hagnýtar menntarannsóknir á öllum skólastigum.
  • Menntarannsoknasj_mynd

Markmið sjóðsins er að auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og umbóta í skólastarfi og styðja við innleiðingu nýrrar menntastefnu. Fyrstu rannsóknaráherslur sjóðsins verða á:

  • Nám og kennslu nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn
  • Skólaforðun og brotthvarf úr námi
  • Nám og kennslu í raungreinum

Opnað verður fyrir umsóknir um mánaðamótin ágúst/september nk. og verður umsóknafresturinn til 1. október. Rannís annast umsýslu sjóðsins, og mun meðal annars skipa fagráð óðháðra rannsakenda á sviði menntavísinda sem leggja mun mat á umsóknir áður en úthlutunarnefnd tekur þær til umfjöllunar og gerir tillögu til ráðherra um ráðstöfun fjárveitinga til styrkþega.

Á þessu ári veitir mennta- og menningarmálaráðherra styrki úr Menntarannsóknasjóði á grundvelli 42. gr. laga nr. 123/2015 um opinber fjármál en stefnt er að því að lögfesta Menntarannsóknasjóð á haustþingi 2021 og móta um hann framtíðarumgjörð í samræmi við opinbera rannsóknasjóði. Heildarfjármagn sjóðsins árið 2021 er 70 milljónir kr.

Nánari upplýsingar á vef Menntarannsóknasjóðs .









Þetta vefsvæði byggir á Eplica