Nýsköpunarsjóður námsmanna auglýsir eftir umsóknum

3.12.2021

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu að rannsókna- og þróunarverkefnum. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar 2022 kl 15.00.

Styrkir eru veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.

Umsóknir um styrki er m.a. metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.

Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn umsjónarmanns frá háskóla, stofnun eða fyrirtæki.

Umsóknarfrestur er til 7. febrúar 2022 kl. 15.00

Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna.

Úthlutun mun liggja fyrir mánaðarmótin mars/apríl 2022.

Hverjir geta sótt um?

  • Háskólanemar í grunn og meistaranámi.
  • Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknar- og/eða þróunarverkefni.

Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar er að finna á síðu Nýsköpunarsjóðs námsmanna.

Einnig er hægt að senda fyrirspurn á nsn(hja)rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica